Beint í efni

Opnun tilboða í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Málsnúmer 2108312

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (2014). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar.

Berg verktakar ehf. kr. 235.331.300
D.Ing - verk ehf. kr. 237.774.900
Gleipnir verktakar ehf. kr. 241.000.000
Háfell ehf. kr. 229.897.300
Klapparverk ehf. kr. 237.603.900
Stálborg ehf/Ljósþing ehf. kr. 256.144.500
Stéttafélagið ehf. kr. 237.401.500
Verktækni ehf. kr. 240.038.900

Kostnaðaráætlun kr. 280.703.030

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Háfells ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er bæjarverkfræðingi falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

2. (898). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2108312)

Bæjarráð Garðabæjar

03

4. (2011). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

2. fundur

Lögð fram umsókn tækni- og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gatnagerð og tilheyrandi í Garðahrauni suður (Prýðahverfi sunnan Garðahraunsvegar).
Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi samkvæmt 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 sem er í samræmi við framlögð gögn.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

11. (889). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Garðahrauni sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála. (Mál nr. 2108312)

Bæjarráð Garðabæjar

06

32 (1990). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að veita framkvæmdaleyfi samkvæmt 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir gatnagerð í Garðahrauni sunnan Garðahraunsvegar. Framkvæmdin er í samræmi við gildandi deiliskipulagsskilmála.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram umsókn tækni-og umhverfissviðs um framkvæmdaleyfi fyrir gerð gatna í Garðahrauni (Prýðahverfi) sunnan Garðahraunsvegar.
Skipulagsnefnd samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við gildandi deiliskipulag Garðahrauns m.s.br. í samræmi við 13.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.