Beint í efni

Niðurstöður verðkönnunar í húseiningar fyrir leikskóla í Kauptúni.

Málsnúmer 2201559

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

7. (2014). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í verðkönnun um kaup og leigu á húseiningum fyrir leikskóla í Kauptúni.

Stólpi Gámar ehf.

Leiguverð kr. 2.300.000 á mánuði í 24 mánuði kr. 55.200.000

Kaupverð eftir 24 mánuði kr. 245.000.000

Samtals: kr. 300.200.000

Terra einingar ehf.

Leiguverð kr. 2.700.000 á mánuði í 24 mánuði kr. 64.800.000

Kaupverð eftir 24 mánuði kr. 202.334.000

Samtals: kr. 267.134.000

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að fela bæjarstjóra að leita samninga við Terra einingar ehf. um leigu á húseiningum fyrir leikskóla í Kauptúni.

Sara Dögg Svanhildardóttir, sat hjá við afgreiðslu málsins og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Enn og aftur stendur til að taka á leigu færanlegar einingar undir leikskóla og aftur ætlar meirihlutinn að viðhafa þau vinnubrögð að taka umdeilda ákvörðun og leita verðtilboða í stað þess að fylgja lögum um opinber innkaup og bjóða út kaup á þjónustu og möguleg kaup á einingum en um það er kveðið sérstaklega í leigutilboðum. Og stunda þar með óábyrga fjármálastjórn.

Undirrituð mótmælir slíkum vinnubrögðum og endurtekur þá afstöðu sem fram kom í bókun sem lögð var fyrir bæjarráð 17. ágúst 2021 vegna kaupa sem fram fóru án útboðs á leigu færanlegra eininga án en þar segir vegna þeirrar ákvörðunar og svara meirihlutans í bókun frá 6. júlí sama ár:

,,Framkomin svör eru í hróplegu ósamræmi við bókun meirihlutans frá 6. júlí sl. Þar er fullyrt að leiga á “fasteign eins og þeirri sem hér um ræðir? sé undanskilin gildissvið laga um opinber innkaup. Nú er ljóst að það er rangt, því hér er ekki um að ræða “fasteign? í skilningi laga heldur lausafé, þ.e vöru. Lög um opinber innkaup eiga því við og skýr útboðsskylda hvílir á Garðabæ. Í 3. mgr. 4. gr. laga um opinber innkaup er skýrt kveðið á um þá samninga sem lögin taka til, m.a. vörusamninga sem hafa að markmiði kaup eða leigu, með eða án kauprétti. Útilokað er að 39. gr. um samningskaup án útboðsauglýsinga eigi hér við.?

Undirrituð óskar eftir því að minnisblað sem Garðabær lét vinna vegna fyrirhugaðra kaupa nú verði gert opinbert sem eðlilegt er og enn fremur fer undirrituð fram á að lagt verði mat á lögmæti þessa erindis frá óháðum aðila.“

Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að auglýsa eftir áhugasömum aðilum til að annast rekstur á leikskólanum samkvæmt samningi við Garðabæ.