48. fundur
48. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
12.04.2023
Kl. 16:30 - 17:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2303390
01
Barnamenningarsjóður Íslands - lokaskýrsla vegna Við langeldinn/Við eldhúsborðið
Lokaskýrsla vegna verkefnisins Við langeldinn/Við eldhúsborðið sem hlaut 4 milljón króna styrk úr Barnamenningarsjóði kynnt. Alls fóru fram 46 smiðjur, gerðir 3 þættir og kennsluefni fyrir sýninguna Aftur til Hofsstaða samið og framleitt.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2303558
02
Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2023
Dagskrá kynnt.
Dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ 2023 kynnt. Alls 750 skólabörn eru skráð til þátttöku á hátíðina. Fyrstu bekkingar taka þátt í danspartýi með færum danskennurum sem fer fram á Garðatorgi, þriðju bekkingar í hönnunarsmiðju í Hönnunarsafninu með hönnuðum, fimmtu bekkingar í ritsmiðju með Gunnari Helgasyni á Bókasafni Garðabæjar og sjöundu bekkingar fræðast um fornleifafræði og landnámið í Garðabæ með fornleifafræðingi í Minjagarðinum á Hofsstöðum og á margmiðlunarsýningunni Aftur til Hofsstaða. Að auki verða tvær sýningar opnaðar af bæjarstjóra og nemendum en það eru "Heimurinn heima" í Hönnunarsafninu sem unnin var af öllum 4. bekkingum í Garðabæ og "Músagangur á bókasafninu" sem unnin var af nemendum á leikskólunum Ökrum og Kirkjulundi.
Hátíðinni lýkur með dagskrá fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 22. apríl.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201263
03
Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða-styrkveitingar 2023
Menningarfulltrúa falið að funda með ungmennaráði og leggja tillögur um úthlutun fram á næsta fundi menningar- og safnanefndar.
Málsnúmer 2102116
04
Bæjarlistamaður Garðabæjar og heiðursviðurkenning 2023
Nefndarmeðlimir ræddu tillögur um næsta bæjarlistamann Garðabæjar og heiðursviðurkenningarhafa og samþykktu einróma tillögu sem send verður bæjarráði í kjölfarið.
Málsnúmer 2210226
05
Styrkumsóknir-menningarmál
Samþykkt einróma að veita Jóhanni Baldvinssyni organista styrk til að halda veglega kveðjutónleika í Vídalínskirkju enda hefur Jóhann unnið ómetanlegt starf í þágu menningar í Garðabæ.
Málsnúmer 2303132
06
Jazzhátíð Garðabæjar 2023
Staða undirbúnings
Menningarfulltrúi fór yfir stöðu undirbúnings hátíðarinnar sem hefur fengið nýtt heiti, Jazzþorpið í Garðabæ. Hátíðin mun fara fram dagana 19. - 21. maí á Garðatorgi en listrænn stjórnandi er Ómar Guðjónsson. Á hátíðinni munu margir af bestu jazztónlistarmönnum landsins koma fram svo sem Mezzoforte. Erindi um jazz, spurningakeppni, ljósmyndasýning, plötubúð og veitingasala verða einnig liður í dagskrá Jazzþorpsins.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2304126
07
Þjóðhátíðardagurinn 2023
Rætt um hátíðarhöld Garðbæinga á Garðatorgi. Aðaláhersla verður á skemmtun fyrir börn og kaffisala Kvenfélags Garðabæjar haldið í Sveinatungu. Að kvöldi 17. júní verða tónleikar haldnir í sal Tónlistarskóla Garðabæjar þar sem hljómsveitin Mandólín mun leika tónlist frá ýmsum heimshornum.