Barnamenningarhátíð í Garðabæ 2023
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
48. fundur
Dagskrá kynnt.
Dagskrá Barnamenningarhátíðar í Garðabæ 2023 kynnt. Alls 750 skólabörn eru skráð til þátttöku á hátíðina. Fyrstu bekkingar taka þátt í danspartýi með færum danskennurum sem fer fram á Garðatorgi, þriðju bekkingar í hönnunarsmiðju í Hönnunarsafninu með hönnuðum, fimmtu bekkingar í ritsmiðju með Gunnari Helgasyni á Bókasafni Garðabæjar og sjöundu bekkingar fræðast um fornleifafræði og landnámið í Garðabæ með fornleifafræðingi í Minjagarðinum á Hofsstöðum og á margmiðlunarsýningunni Aftur til Hofsstaða. Að auki verða tvær sýningar opnaðar af bæjarstjóra og nemendum en það eru "Heimurinn heima" í Hönnunarsafninu sem unnin var af öllum 4. bekkingum í Garðabæ og "Músagangur á bókasafninu" sem unnin var af nemendum á leikskólunum Ökrum og Kirkjulundi.
Hátíðinni lýkur með dagskrá fyrir alla fjölskylduna laugardaginn 22. apríl.