Jazzþorpið í Garðabæ 2023
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
49. fundur
Hvernig tókst til?
Rætt um vel heppnað Jazzþorp í Garðabæ helgina 19. - 21. maí. Samstarfið við Góða hirðinn gekk vonum framar og hefur verið fest í sessi fyrir næstu Jazzþorp. Rætt um greinilega ánægju meðal bæjarbúa og annarra gesta.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
48. fundur
Staða undirbúnings
Menningarfulltrúi fór yfir stöðu undirbúnings hátíðarinnar sem hefur fengið nýtt heiti, Jazzþorpið í Garðabæ. Hátíðin mun fara fram dagana 19. - 21. maí á Garðatorgi en listrænn stjórnandi er Ómar Guðjónsson. Á hátíðinni munu margir af bestu jazztónlistarmönnum landsins koma fram svo sem Mezzoforte. Erindi um jazz, spurningakeppni, ljósmyndasýning, plötubúð og veitingasala verða einnig liður í dagskrá Jazzþorpsins.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
47. fundur
Ómar Guðjónsson kynnir drög að nýju fyrirkomulagi hátíðar.
Ómar Guðjónsson, nýr listrænn stjórnandi Jazzhátíðar í Garðabæ kynnti hugmyndir sínar að umgjörð og dagskrá hátíðarinnar. Stefnt á að halda hátíðina dagana 19. - 21. maí.