49. fundur
30.05.2023
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
49. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
30.05.2023
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðfinnur Sigurvinsson - formaður
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2303132
01
Jazzþorpið í Garðabæ 2023
Hvernig tókst til?
Rætt um vel heppnað Jazzþorp í Garðabæ helgina 19. - 21. maí. Samstarfið við Góða hirðinn gekk vonum framar og hefur verið fest í sessi fyrir næstu Jazzþorp. Rætt um greinilega ánægju meðal bæjarbúa og annarra gesta.
Málsnúmer 2305569
02
Útnefning bæjarlistamanns 2023, heiðursviðurkenning og styrkjaafhending
Rætt um skipulagu athafnar 2. júní 2023
Farið yfir skipulag athafnar þegar bæjarlistamaður verður útnefndur þann 2. júní, heiðursviðurkenning veitt fyrir ómetanlegt framlag til menningarlífs og styrkir veittir til ungra hönnuða og listamanna.
Málsnúmer 2305589
03
Hátíðir í Garðabæ
Rætt um dreifingu hátíða yfir árið í Garðabæ. Fastir punktar settir niður.