Beint í efni

Styrkumsóknir-menningarmál

Málsnúmer 2210226

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

48. fundur

Samþykkt einróma að veita Jóhanni Baldvinssyni organista styrk til að halda veglega kveðjutónleika í Vídalínskirkju enda hefur Jóhann unnið ómetanlegt starf í þágu menningar í Garðabæ.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

46. fundur

Rætt um þörf fyrir tónleikasal í Garðabæ sem rýmar stóra hópa svo sem blásarasveitir Tónlistarskóla Garðabæjar. Nefndin veitir Tónlistarskóla 400 þúsund króna styrk til að tryggja að sveitirnar geti haldið vortónleika í stórum sal s.s. Borgarleikhúsinu. Ljóst er að Tónlistarskóli Garðabæjar verðskuldar stækkun og stuðning.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

03

43. fundur

Styrkumsóknir v. menningarverkefnanna Mozart við kertaljós og Ef ég gleymi

Menningar- og safnanefnd ræddi umsóknir um styrki til menningarverkefna. Samþykkt einróma var að styrkja tvö verkefni.
1) Verkefni Camerarcticu, Mozart við kertaljós í Garðakirkju fær 300 þúsund króna styrk. Hópurinn hefur haldið tónleika stuttu fyrir jól m.a. í Garðakirkju en í ár verða tónleikarnir haldnir í 30.sinn.
2) Ef ég gleymi, leiksýningu Sigrúnar Waage um heilabilun fær 500 þúsund króna styrk en þrjár sýningar fara fram í sal Vídalínskirkju á haustönn.

Fylgiskjöl