38. fundur
38. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
Fundurinn er haldinn með fjarfundarbúnaði
07.02.2022
Kl. 16:15 - 17:15
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Bjarndís Lárusdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2201263
01
Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða, endurskoðun
Fyrir fundinum lá að nýju tillaga menningarfulltrúa að endurskoðuðum reglum um Hvatningarsjóð fyrir unga listamenn í Garðabæ þannig að reglurnar nái einnig til ungra hönnuða. Menningarfulltrúi hefur kynnt tillöguna fyrir forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands og ungmennaráði bæjarins og fengið jákvæð viðbrögð þessara aðila.
Menningar- og safnanefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu menningarfulltrúa að reglum um Hvatningarsjóð fyrir unga hönnuði og listamenn og vísar reglunum til afgreiðslu bæjarráðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2201286
02
Myndbönd, vetrarhátíð og viðburðir- endurskoðun dagskrár vegna heimsfaraldurs
Menningarfulltrúi kynnti breytingar á dagskrá og gerð og sýningu myndbanda sem komu í stað viðburða sem varð að aflýsa í vetur vegna heimsfaraldurs. Upptaka á myndböndum fór fram í lok janúar og hafa nú þegar tvö þeirra verið sýnd, stofutónleikar tenórsins Gissurar Páls Gissurarsonar og örnámskeið í útsaumi með fatahönnuðinum Sunnu Örlygsdóttur.
Þrír stuttir fræðslu- og skemmtiþættir með þjóðfræðingnum Dagrúnu Ósk Jónsdóttur sem myndskreyttir eru af Ara Yates verða sýndir nú í febrúar. Þættirnir eru bæði ætlaðir skólum sem og börnum og fjölskyldum þeirra.
Framlag Garðabæjar til Vetrarhátíðar 2022 var ókeypis aðgangur á sýninguna „Sund“ í Hönnunarsafni Íslands en hvorki varð af Sundlauganótt né Safnanótt á höfuðborgarsvæðinu.
Gert er ráð fyrir að viðburðir hefjist að nýju í lok febrúar/byrjun mars.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2110080
03
Staða Hofsstaðaverkefnis
Teikningar af fyrirhugaðari lokun undir rampi á Garðatorgi 7 kynntar. Menningarfulltrúi skýrir frá stöðu verkefnisins sem nú er komið á borð framkvæmdasviðs Garðabæjar en hugbúnaðargerð á vegum Gagarín er lokið. Menningarfulltrúi mun halda nefndinni upplýstri um verkefnið eftir því sem því vindur fram.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2008671
04
Listahátíð í Reykjavík óskar eftir samstarfi
Listrænn stjórnandi Listahátíðar, Vigdís Jakobsdóttir, hefur í erindi dagsettu 7. febrúar 2022 óskað eftir samstarfi við Garðabæ laugardaginn 4. júní nk. Götuleikhúshópurinn Close-Act kemur fram með skrúðgöngu um Garðabæ sem lýkur á torgi þar sem pláss væri fyrir aðila á stultum með stóra blævængi og hóp trommuleikara. Söngkona í 2ja metra hæð lýkur göngunni. Garðabær verður kynntur sem samstarfsaðili. Óskað hefur verið eftir fjármagni til verkefnisins sem nemur 250 þúsund krónum.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í ósk stjórnanda Listahátíðar um samstarf og felur menningarfulltrúa að fylgja því eftir.