Önnur menningarmál
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
43. fundur
Rætt um aðventuhátíð Garðabæjar sem haldin verður 26. nóvember með fjölbreyttri aðventudagskrá á Bókasafni Garðabæjar, Hönnunarsafni Íslands og á yfirbyggðum torgum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
43. fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar kynnti nýjar hugmyndir um miðbæ Garðabæjar á Garðatorgi. Nefnd sem skipuð var um málefnið mun vinna að aðgerðaáætlun þegar niðurstöður úr hugmyndum bæjarbúa liggja fyrir. Tekið var við hugmyndum bæjarbúa rafrænt sem og á uppskeruhátíð á Garðatorgi þann 1. október sl.
Sigríður Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar kynnti nýjar hugmyndir um miðbæ Garðabæjar á Garðatorgi. Nefnd sem skipuð var um málefnið mun vinna að aðgerðaráætlun þegar niðurstöður úr hugmyndum bæjarbúa liggja fyrir. Tekið var við hugmyndum bæjarbúa rafrænt sem og á uppskeruhátíð á Garðatorgi þann 1. október s.l.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
38. fundur
Listrænn stjórnandi Listahátíðar, Vigdís Jakobsdóttir, hefur í erindi dagsettu 7. febrúar 2022 óskað eftir samstarfi við Garðabæ laugardaginn 4. júní nk. Götuleikhúshópurinn Close-Act kemur fram með skrúðgöngu um Garðabæ sem lýkur á torgi þar sem pláss væri fyrir aðila á stultum með stóra blævængi og hóp trommuleikara. Söngkona í 2ja metra hæð lýkur göngunni. Garðabær verður kynntur sem samstarfsaðili. Óskað hefur verið eftir fjármagni til verkefnisins sem nemur 250 þúsund krónum.
Menningar- og safnanefnd tekur jákvætt í ósk stjórnanda Listahátíðar um samstarf og felur menningarfulltrúa að fylgja því eftir.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
37. fundur
Fyrir fundinum lá tillaga Hrannars Braga Eyjólfssonar um minjasafn Garðabæjar og varðveislu skjala og ljósmynda.
Tillagan var lögð fram og vísað til frekari umræðu menningar- og safnanefndar. Menningarfulltrúa falið að kanna lagagrundvöll málsins og skoða nánari möguleika og kostnað við tillöguna.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
05
35. fundur
Tónlistarveisla í skammdeginu rædd.
Samþykkt að fela menningarfulltrúa að hefja undirbúning tónlistarviðburðarins „Tónlistarveisla í skammdeginu 2021“. Viðburðurinn hefur verið árlegur á Garðatorgi mörg undanfarin ár en féll niður í fyrra vegna samkomutakmarkana Covid-19 faraldursins.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
06
34. fundur
a) Málefni húsnæðis Bókasafns Garðabæjar
Rætt um húsnæðismál Bókasafns Garðabæjar.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
07
33. fundur
Sagt frá upptöku á ávarpi forseta bæjarstjórnar sem sýnt verður þann 17. júní. Björg Fenger mun einnig verða í hlutverki fjallkonu og mun bera skautbúning Kvenfélags Álftaness og Kvenfélags Garðabæjar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
08
32. fundur
a) Á næsta fundi menningar- og safnanefndar mun menningarfulltrúi gera grein fyrir stöðu mála varðandi stórtónleika í fjölnota íþróttahúsi í Vetrarmýri vorið 2022.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
09
30. fundur
Næsti fundur menningar- og safnanefndar 3. maí.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
10
26. fundur
a)Héraðsskjalavörður Kópavogs hafði samband við menningarfulltrúa vegna málefna skjalavörslu Garðabæjar. Skjalavarsla rædd almennt.
b)Rætt um að menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahús verði á dagskrá næsta fundar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
11
25. fundur
Rætt um aðventudagskrá á Covid-tímum en ekki er útlit fyrir að unnt verði að halda fjölmenna dagskrá utandyra eða innandyra á aðventu.
Stefnt er að því að bjóða leikskóla- og grunnskólabörnum á jólatrésdagskrá á Garðatorgi ef slíkt samkomuhald verður leyft þegar kemur fram í desember.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
12
24. fundur
Tónlistarklasi í Garðabæ: Skýrt frá fyrstu skrefum í undirbúningsvinnu en formaður og menningarfulltrúi hittu formann skólanefndar TG og skólastjóra TG um málið þann 22. september s.l.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
13
23. fundur
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs skýrði frá verkefni á sviði menningarmála í tengslum við sumarstörf ungmenna á vegum bæjarins í ár. Um var að ræða gerð viðskiptaáætlunar fyrir menningar- og fræðamiðstöð í Garðabæ sem starfshópur skipaður fjórum ungmennum vann undir stjórn menningarfulltrúa í sumar. Unnið er að lokafrágangi greinargerðar verkefnisins.Hönnunarhópur í sumarstarfi kom með tillögur að stöðum þar sem hægt væri að skreyta með veggjalist en hópurinn málaði m.a. regnbogafána á Garðatorgi og bláar doppur sem vísa farþegum strætó að Hönnunarsafni.
Skapandi sumarstörf luku fjölbreyttum verkefni með sóma.
Formaður ræddi endurskoðun menningarstefnu Garðabæjar og samstarf við Hönnunarsafn Íslands og Tónlistarskóla Garðabæjar í kjölfar sameiginlegra funda með stjórnum þessara stofnana bæjarins á síðasta ári en öll þessi mál eru meðal nýrra mála sem tilgreind eru í starfsáætlun menningar- og safnanefndar 2020-2021
300 ára ártíð Jóns biskups Vídalíns var minnst með guðsþjónustu í Garðakirkju að viðstöddum biskupi sl. sunnudag.Jón Vídalín fæddist í Görðum og gegndi þar prestþjónustu þartil hann varð biskup í Skálholti.