Beint í efni

34. fundur

06.09.2021
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

34. fundur

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

06.09.2021

Kl. 16:15 - 17:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi

Ritari

  • Ólöf Breiðfjörð

Dagskrá

Málsnúmer 2109086

01

Dagskrárbæklingur haust 2021

Menningarfulltrúi kynnti nýútkomna haustdagskrá menningarmála í Garðabæ. Dagskráin inniheldur m.a. viðburði og sýningar Hönnunarsafns Íslands, Bókasafns Garðabæjar. Auk þess er þar sagt frá viðburðum verkefnisins „Við langeldinn/Við eldhúsborðið“ sem styrkt er af Barnamenningarsjóði og fer fram tvisvar sinnum í mánuði. Þá er dagskrá hádegistónleikaraðarinnar Tónlistarnæring kynnt. Haustdagskráin var borin á öll heimili í Garðabæ og er aðgengileg á vef Garðabæjar og í pappírsformi á söfnum og í þjónustuveri bæjarins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109085

02

Menningarsumarið 2021

Menningarfulltrúi sagði frá hvernig tókst til með sumardagskrá sem sumarstarfsmenn sáu um en smiðjur fyrir börn fóru fram tvisvar sinnum í viku í Hönnunarsafninu, einnig sáu sumarstarfsmenn um sumarsunnudagaskóla í ágúst. Kirkjukaffi að loknum sumarmessum í Garðakirkju var í hlöðunni í Króki og var mikil ánægja með samstarfið. Þá vann sumarstarfsmaður með Gagarín að handritsgerð og öflun gagna vegna Hofsstaðagarðsverkefnisins.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109082

03

Listaverkakaup

Menningarfulltrúi kynnti ljósmyndaseríuna Umhverfing eftir Pétur Thomsen. Samþykkt var einróma að festa kaup á völdum verkum úr seríunni og finna verkunum viðeigandi stað. Menningarfulltrúa var falið að ræða við listamanninn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2109084

04

Styrkumsókn

Samþykkt að veita 400.000 kr. styrk til Söngleiksins Pálmar sem tvær ungar stúlkur úr Garðabæ hafa samið og verður settur upp í Fjölbrautaskóla Garðabæjar í lok september. Um mjög metnaðarfullt verkefni er að ræða og einróma álit menningar- og safnanefndar að styrkja þessar ungu og efnilegu tónlistarkonur vegna þess. Nefndin leggur áherslu á að viðburðurinn verði kynntur vel fyrir íbúum bæjarins áður en söngleikurinn verður fluttur í sal fjölbrautaskólans.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2105101

05

Tónlistarhátíð í Garðabæ - Secret Solstice

Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar óskuðu á vordögum eftir samtali við Garðabæ um að kanna möguleikann á að hátíðin verði haldin á Vífilsstaðatúni og í nærumhverfi þess frá árinu 2022 en hátíðin hefur til þessa verið haldin í Laugardal í Reykjavík. Bæjarráð sendi málið til umfjöllunar í menningar- og safnanefnd og íþrótta- og tómstundaráði.

Menningarfulltrúi hefur skoðað málið ásamt íþrótta- tómstunda- og forvarnafulltrúa Garðabæjar og forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs bæjarins og rakti menningarfulltrúi niðurstöðu þeirrar skoðunar. Fyrir liggja mikil áform um framkvæmdir í Hnoðraholti, í Vetrarmýri og á öðrum svæðum í landi Vífilsstaða á næstu árum, m.a. við uppbyggingu íbúðarbyggðar og atvinnulóða auk þess sem leikskóli er staðsettur upp af Vífilsstaðatúni og annar í byggingu. Með vísan til þessara áforma um miklar framkvæmdir á þessu svæði telur menningar- og safnanefnd að Vífilsstaðatún og nærumhverfi sé ekki heppilegur vettvangur fyrir hina árlegu tónlistarhátíð Secret Solstice.

Málsnúmer 2103220

06

Menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahúss

Menningarfulltrúi greindi frá stöðu undirbúnings stórtónleika í tilefni af vígslu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri vorið 2022.

Menningarfulltrúa var falið að taka saman fyrir næsta fund yfirlit yfir fyrirhugaða menningardagskrá í Garðabæ í tilefni af vígslu fjölnota íþróttahússins, þ.m.t. varðandi tónleikana sem rætt hefur verið um að verði haldnir í maí 2022. Skoða þarf sérstaklega hvaða áhrif hugsanlegar samkomutakmarkanir í þjóðfélaginu vorið 2022 vegna yfirstandandi heimsfaraldurs geta haft á tónleikaáformin.

Málsnúmer 1711209

07

Minjagarðurinn að Hofsstöðum-staða verkefnis

Á næsta fundi nefndar mun Hringur Jóhannesson hjá Gagarín kynna stöðu verkefnisins.

Málsnúmer 2008671

08

Önnur menningarmál

a) Málefni húsnæðis Bókasafns Garðabæjar

Rætt um húsnæðismál Bókasafns Garðabæjar.

Fylgiskjöl