Beint í efni

Menningardagskrá vegna vígslu fjölnota íþróttahúss

Málsnúmer 2103220

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

34. fundur

Menningarfulltrúi greindi frá stöðu undirbúnings stórtónleika í tilefni af vígslu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri vorið 2022.
Menningarfulltrúa var falið að taka saman fyrir næsta fund yfirlit yfir fyrirhugaða menningardagskrá í Garðabæ í tilefni af vígslu fjölnota íþróttahússins, þ.m.t. varðandi tónleikana sem rætt hefur verið um að verði haldnir í maí 2022. Skoða þarf sérstaklega hvaða áhrif hugsanlegar samkomutakmarkanir í þjóðfélaginu vorið 2022 vegna yfirstandandi heimsfaraldurs geta haft á tónleikaáformin.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

02

30. fundur

Unnið er að skipulagi opnunar- og vígsluhátíðar fjölnota íþróttahússins í Vetrarmýri sem verður tilbúið í febrúar 2022.

Unnið er að skipulagi opnunar- og vígsluhátíðar fjölnota íþróttahússins í Vetrarmýri sem verður tilbúið í febrúar 2022.
Einnig verður viðburður tengdur menningarhátíð bæjarins vorið 2022 haldinn í húsinu.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

03

29. fundur

Í undirbúningi er dagskrá við opnun og vígslu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Áætluð tímasetning er í febrúar og mars 2022. Dagskráin mun undirstrika fjölbreytta notkunarmöguleika hússins fyrir alla aldurshópa.

Í undirbúningi er dagskrá fyrir opnun og vígslu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri. Áætluð tímasetning er í febrúar og mars 2022. Dagskráin mun undirstrika fjölbreytta notkunarmöguleika hússins fyrir alla aldurshópa.