30. fundur
30. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
16.04.2021
Kl. 15:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - aðalmaður
- Þorri Geir Rúnarsson - aðalmaður
- Stefanía Magnúsdóttir - aðalmaður
- Guðjón Pétur Lýðsson - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2102182
01
Endurnýjun samnings
ÍTG samþykkir að samningur við Bessastaðasókn um æskulýðsstarf verði framlengdur til lok árs 2022.
Málsnúmer 2103259
02
Átaksverkefni til að efla félagsstarf fullorðinna í samvinnu við sveitarfélögin,
Lagt fram til kynningar. Garðabær vinnur að því að sækja um fjárframlag í verkefnið. ÍTG hvetur FEBG og FEBÁ til að kynna sér verkefnið vel og þá möguleika sem í því felast.
Málsnúmer 2104184
03
Sumarstarf félagsmiðstöðva
Félagsmiðstöðvarnar í Garðabæ hafa sent inn umsókn til Félagsmálaráðuneytisins vegna styrks til að halda úti sumardagskrá.
ÍTG fagnar umsókn félagsmiðstöðvanna í Garðabæ og vonast til að sjá starfsemi þeirra í gangi í sumar.
Málsnúmer 2103428
04
Tækjakaup í íþróttahús í Vetrarmýri
Unnið er að búnaðarkaupalista fyrir Fjölnota íþróttahúsið í Vetrarmýri. Stefnt er að því að bjóða út þessi innkaup.
Íþróttafulltrúi sagði frá undirbúningi vegna búnaðarkaupa í fjölnota íþróttahúsið í Vetrarmýri.
Málsnúmer 2103348
05
Swipbox DHL á Álftanesi
UMFÁ hefur fengið leyfi til að gera samning við DHL um að staðsetja Swip-box í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar við Breiðumýri á Álftanesi.
UMFÁ hefur fengið leyfi til að gera samning við DHL um að staðsetja Swip-box í anddyri íþróttamiðstöðvarinnar við Breiðumýri á Álftanesi.
Málsnúmer 2103322
06
Nordía 2023 í Ásgarði
Félag frímerkjasafnara á Íslandi hefur óskað eftir því að halda NORDIA 2023 í Ásgarði fyrstu daga júnímánaðar 2023. Þetta yrði í þriðja skipti sem slík sýning væri haldin hér í Garðabæ.
ÍTG samþykkir að Félag frímerkjasafnara á Íslandi geti haldið NORDIA 2023 í Ásgarði fyrstu daga júnímánaðar 2023. Þetta yrði í þriðja skipti sem slík sýning væri haldin hér í Garðabæ. Íþróttafulltrúa falið að ganga frá samningum við félagið.
Málsnúmer 2103302
07
Klifurveggur í Vetrarmýri
Unnið er að því að teikna upp og útfæra klifurvegginn sem koma mun í fjölnota íþróttahúsið í Vetrarmýri. Samstarf er um það við björgunarsveitina í Garðabæ og Klifurhúsið sem veitir faglega ráðgjöf. Bæði verður hægt að stunda veggjaklifur og línuklifur.
Unnið er að því að teikna upp og útfæra klifurvegg í fjölnota íþróttahúsið í Vetrarmýrinni. Samstarf er við Björgunarsveitina í Garðabæ og Klifurhúsið sem veitir faglega ráðgjöf við verkefnið. Bæði verður hægt að stunda veggjaklifur og línuklifur í aðstöðunni.
Málsnúmer 2103220
08
Opnun og vígsla fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri
Unnið er að skipulagi opnunar- og vígsluhátíðar fjölnota íþróttahússins í Vetrarmýri sem verður tilbúið í febrúar 2022.
Unnið er að skipulagi opnunar- og vígsluhátíðar fjölnota íþróttahússins í Vetrarmýri sem verður tilbúið í febrúar 2022.
Einnig verður viðburður tengdur menningarhátíð bæjarins vorið 2022 haldinn í húsinu.
Málsnúmer 2102502
09
Mikilvægi þátttöku barna og ungmenna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi.
Vertu með - bréf um mikilvægi þátttöku barna af erlendum uppruna í íþróttum.
ÍTG hvetur skóla og íþróttafélög til að nýta sér það efni sem UMFÍ og ÍSÍ hafa gefið út til að upplýsa foreldra barna af erlendum uppruna um þau tækifæri og gildi sem felast í þátttöku í skipulögðu tómstundastarfi.
Málsnúmer 2102381
10
Tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu.
Tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til kynningar.
Tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu var lögð fram til kynningar.
a. Sagt var frá kynningarfundum á niðurstöðum á stöðu barna í 8-10. bekk í Garðabæ sem fram fór 7. apríl sl. fyrir skólastjórnendur og foreldra.
b. Gunnar Richardsson sagði frá undirbúningi Vinnuskólans sumarið 2021
c. Atvinnuátak skólafólks sumarið 2021 var rætt.
d. Leiðtogaþjálfun í kvennaíþróttum - verkefni 19. júnísjóðs sem er í gangi. Staða verkefnisins rædd.
e. Sagt var frá undirbúningi Stjörnuhlaupsins sem fram fer síðdegis laugardaginn 29. maí nk. með nokkuð nýju sniði.