Menningarsumarið 2021
Málsnúmer 2109085
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
34. fundur
Menningarfulltrúi sagði frá hvernig tókst til með sumardagskrá sem sumarstarfsmenn sáu um en smiðjur fyrir börn fóru fram tvisvar sinnum í viku í Hönnunarsafninu, einnig sáu sumarstarfsmenn um sumarsunnudagaskóla í ágúst. Kirkjukaffi að loknum sumarmessum í Garðakirkju var í hlöðunni í Króki og var mikil ánægja með samstarfið. Þá vann sumarstarfsmaður með Gagarín að handritsgerð og öflun gagna vegna Hofsstaðagarðsverkefnisins.