Beint í efni

Styrkumsókn HIMA

Málsnúmer 2109084

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

40. fundur

Fyrir fundinum lá umsókn dags. 04.04.2022 frá tónlistarnámskeiðinu HIMA sem haldið verður í júní í annað sinn í Garðabæ. Námskeiðið, sem er alþjóðlegt námskeið fyrir strengjahljóðfæra-og píanónemendur, er vel sótt og vaxandi áhugi meðal nemenda í Tónlistarskóla Garðabæjar. Að þessu sinni hefur námskeiðið fengið aðstöðu í Tónlistarskóla Garðabæjar og í Flataskóla. Alls taka 80 nemendur þátt í námskeiðinu. Menningarfulltrúi leggur áherslu á að þetta alþjóðlega námskeið sé mjög jákvætt fyrir ímynd Garðabæjar og að tónlistarnemendur í bænum geti hér sótt metnaðarfullt námskeið með hinum færustu kennurum í sínum heimabæ.
Menningar- og safnanefnd samþykkir að styrkur að upphæð 400.000 kr. verði veittur en það er sama fjárhæð og veitt veitt var til verkefnisins á árinu 2021.

Fylgiskjöl

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

02

34. fundur

Samþykkt að veita 400.000 kr. styrk til Söngleiksins Pálmar sem tvær ungar stúlkur úr Garðabæ hafa samið og verður settur upp í Fjölbrautaskóla Garðabæjar í lok september. Um mjög metnaðarfullt verkefni er að ræða og einróma álit menningar- og safnanefndar að styrkja þessar ungu og efnilegu tónlistarkonur vegna þess. Nefndin leggur áherslu á að viðburðurinn verði kynntur vel fyrir íbúum bæjarins áður en söngleikurinn verður fluttur í sal fjölbrautaskólans.

Fylgiskjöl