Myndbönd, vetrarhátíð og viðburðir- endurskoðun dagskrár vegna heimsfaraldurs
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
38. fundur
Menningarfulltrúi kynnti breytingar á dagskrá og gerð og sýningu myndbanda sem komu í stað viðburða sem varð að aflýsa í vetur vegna heimsfaraldurs. Upptaka á myndböndum fór fram í lok janúar og hafa nú þegar tvö þeirra verið sýnd, stofutónleikar tenórsins Gissurar Páls Gissurarsonar og örnámskeið í útsaumi með fatahönnuðinum Sunnu Örlygsdóttur.
Þrír stuttir fræðslu- og skemmtiþættir með þjóðfræðingnum Dagrúnu Ósk Jónsdóttur sem myndskreyttir eru af Ara Yates verða sýndir nú í febrúar. Þættirnir eru bæði ætlaðir skólum sem og börnum og fjölskyldum þeirra.
Framlag Garðabæjar til Vetrarhátíðar 2022 var ókeypis aðgangur á sýninguna „Sund“ í Hönnunarsafni Íslands en hvorki varð af Sundlauganótt né Safnanótt á höfuðborgarsvæðinu.
Gert er ráð fyrir að viðburðir hefjist að nýju í lok febrúar/byrjun mars.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
37. fundur
Menningarfulltrúi kynnti dagskrá vorannar 2022 og sagði frá breytingum á dagskrá í upphafi árs vegna covid 19 - samkomutakmarkana. Meðal annars eru nokkur myndbönd í farvatninu þar sem viðkomandi viðburðum hefur verið frestað.