58. fundur
58. fundur
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
16.05.2024
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Guðrún Arna Sturludóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
- Steinunn Vala Sigfúsdóttir - varamaður
- Arnar Hólm Einarsson - varamaður
Starfsmenn
- Ólöf Hulda Breiðfjörð - menningarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Ólöf Breiðfjörð
Dagskrá
Málsnúmer 2402168
01
Jazzþorpið í Garðabæ
Hvernig tókst til?
Rætt um hvernig tókst til framkvæmdar Jazzþorpsins 2024. Ánægja meðal bæjarbúa og annarra gesta leynir sér ekki. Stefnt er að því að halda hátíðina fyrstu helgina í maí á næsta ári. Listrænn stjórnandi þorpsins, Ómar Guðjónsson, vill koma á framfæri þökkum fyrir traust og samstarf við starfsmenn bæjarins við uppsetningu þorpsins sem og niðurtöku.
Málsnúmer 2404396
02
Hvatningarsjóður ungra listamanna og hönnuða 2024
Staðfesting á styrkveitingum
Styrkir úr hvatningarsjóði ungra hönnuða og listamanna samþykktir einróma. Tekið var mið af ályktun fulltrúa ungmennaráðs Garðabæjar um styrkupphæðir. Styrkir verða afhentir við útnefningu bæjarlistamanns og afhendingu heiðursviðurkenningar vegna ómetanlegs starfs í þágu menningar.
Málsnúmer 2403120
03
Gróska samstarfssamningur
Samningur undirritaður 5. maí
Samningur hefur verið undirritaður og undirbúningur á Jónsmessugleði hafinn.
Málsnúmer 2405214
04
17. júní 2024
Drög að dagskrá kynnt
Farið yfir fyrirhugaða dagskrá á 17. júní sem verður með sama sniði og fyrra ár. Þátttakendur verða Skátafélagið Vífill, Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar, Kvenfélag Garðabæjar en auk þess stíga vinsælir skemmtikraftar á svið. Fjallkonan mun klæðast búningi Kvenfélags Álftaness að þessu sinni.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2403132
05
Útnefning bæjarlistamanns 2024 og heiðursviðurkenning
Rætt um skipulag á athöfn
Rætt um dagsetningu athafnar og framkvæmd.