Gróska samstarfssamningur
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
58. fundur
Samningur undirritaður 5. maí
Samningur hefur verið undirritaður og undirbúningur á Jónsmessugleði hafinn.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2117). fundur
Samstarfssamningur Garðabæjar við Grósku, samtök myndlistarmanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ lagður fram. Bæjarráð staðfestir samninginn. Samningurinn er til þriggja ára, 2024-2026, með fastri árlegri fjárhæð kr. 1.900.000.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
57. fundur
Lokaumræða nefndar
Samningur Grósku samþykktur af hálfu menningar- og safnanefndar. Samningur fer til umræðu í bæjarráði.
Fylgiskjöl
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
04
55. fundur
Formaður Grósku, Birgir Rafn Friðriksson, kynnti starfssemi Grósku frá upphafi félagsins til dagsins í dag. Dagskrá ársins 2024 kynnt sérstaklega en þar ber hæst Jónsmessugleði Grósku.Sviðsstjóra og menningarfulltrúa falið að ganga frá samstarfssamningi við Grósku samkvæmt drögum af dagskrá sem nefndin hefur lagt fyrir.