16. (2117). fundur
16. (2117). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
30.04.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - varamaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - varamaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2308538
01
Ársreikningur Garðabæjar 2023 - endurskoðunarskýrsla.
Davíð Búi Halldórsson, löggiltur endurskoðandi starfsmaður Enor gerði grein fyrir skýrslu endurskoðanda fyrir árið 2023. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd endurskoðunar, helstu áherslum, niðurstöðum og öðrum mikilvægum atriðum.
Lagt fram minnisblað Enor um breytingar á ársreikningi frá fyrri umræðu. Breytingarnar varða framsetningu á verkum í vinnslu og innheimtum tekjum vegna gatnagerðargjalda í efnahagsreikningi Garðabæjar. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstrarreikning Garðabæjar. Bæjarráð vísar breytingunum til afgreiðslu við síðari umræðu um ársreikning sem fyrirhuguð er 2. maí nk.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2306493
02
Lautargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita HVH ehf., kt. 450916-1880, leyfi til að byggja tíu íbúða fjölbýlishús á lóðinni Lautargötu 1.
Málsnúmer 2312130
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24 apríl 2024, um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norðurs sem gerir ráð fyrir uppfærslu deiliskipulagsskilmála ásamt fjölgun íbúða í fjölbýlishúsum norðan Vorbrautar um 13.
Tillagan var auglýst 25. janúar 2024 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 8. mars 2024. Athugasemdir við tillöguna voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 14. mars 2024 og var þeim vísað til úrvinnslu umhverfissviðs og deiliskipulagshöfundar. Svör við athugasemdum liggja fyrir.
Lagt er til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni, þar sem brugðist er við umsögnum og athugasemdum.
-bílastæðum á lóð að Vorbraut 19 verði fjölgað úr 6 í 8.
-að leiðrétt verði villa um breidd byggingarreits á mæliblaði lóðarinnar Vorbraut 7.
-að legu aðkomuramps fyrir bílageymslu á lóðinni Vorbraut 3 verði breytt.
-að fjölgað verði íbúðareiningum á lóðinni Vorbraut 5 um 2, Vorbraut 11 um 1, Vorbraut 15 um 2 og Vorbraut 17 um 1.
-að hámarksbyggingarmagn einbýlishúsa við Skerpluholt verði aukið um 15 fermetra, úr 225 í 240.
-að breytingar verði gerðar á kafla 1.3. í skipulagsgreinargerð sem gerir ráð fyrir því að raðhúslengjur við Vorbraut í austasta hluta deiliskipulagsvæðis Hnoðraholts norður verði talið til Hnoðraholts suðurs í viðmiðunartöflum rammahluta aðalskipulags fyrir Vífilsstaðaland enda eru þau innan landnotkunarreits Hnoðraholts suður á aðalskipulagsuppdrætti.
-að breidd raðhúslóðanna við Útholt 5-9 verði minnkaðar lítillega.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 2402558
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður vegna lóðarinnar við Stekkholt 22.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, í tilefni af umsókn um breytingu sem nær til einbýlishúsalóðarinnar Stekkholts 22, sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur færist til austurs og að byggingarmagn aukist.
Grenndarkynna skal eigendum Stekkholts 20, 51 og 53 sem og Vorbrautar 17 og 19. Ennfremur eigendum Þrymsala 18 og 19 og Þrúðsala 16, 17 og 18 í Kópavogi.
Málsnúmer 2311113
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi fyrir Hæðarhverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag Hæðahverfis.
Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.
Gerð hefur verið sú breyting frá forkynntri tillögu að raðhúslóðin Blómahæð 7 stækkar að göngustíg.
Lagt er til að í grein 3.1. í greinargerð verði bætt við eftirfarandi setningu:
"Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni." í grein 3.1. í greinargerð verði bætt eftirfarandi setningu: „Á lóðinni er gert ráð fyrir leikskóla. Fjöldi barna eða deilda takmarkast við það byggingarmagn og fjölda bílastæða sem heimiluð eru á lóðinni."
Málsnúmer 2403405
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna deiliskipulags Deildar og Landakots á Álftanesi varðandi dælustöð fráveitu.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit vegna fráveitumannvirkja í samræmi við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Í tillögunni er gert ráð fyrir 785 m2 lóð. Innan byggingarreits er heimilt að reisa dælistöð fyrir skólp með þeim tækjabúnaði sem stöðin krefst í samræmi við reglugerð um fráveitu og skólp nr. 789/1999. Til bráðarbirgða verði heimilt að reisa mannvirki, s.s. gám fyrir grófhreinsun á skólpi sem í dag rennur óhreinsað út í sjó við Hrakhólma.
Heildarbyggingarmagn lóðar er allt að 100 m2 að grunnfleti og hámarkshæð fyrir bráðabirgðar mannvirki er allt að 3 metrar (22 feta gámur).
Til frambúðar er gert ráð fyrir niðurgrafinni dælustöð, allt að einn meter að hæð þaðan sem skólpi verður dælt til varanlegrar hreinsistöðvar sem verður á öðrum stað.
Við framkvæmdir skal þess gætt að jarðrask verði sem allra minnst og frágangur á yfirboði falli sem best að landslagi.
Kynna skal tillöguna sérstaklega fyrir eigendum aðliggjandi húsa við Hólmatún.
Málsnúmer 2208311
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag athafnahverfis í Búðum.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag athafnahverfis í búðum.
Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.
Ákvæði er varðar skilti hefur verið breytt lítillega vegna umsagnar Heilbrigðiseftirlits.
Málsnúmer 2208310
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag íbúðahverfis í Bæjargili.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga deiliskipulag Bæjargils.
Tillagan var kynnt á íbúafundi sem haldinn var 11. mars 2024.
Málsnúmer 2403120
09
Samstarfssamningur við Grósku, samtök myndlistarmanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ.
Samstarfssamningur Garðabæjar við Grósku, samtök myndlistarmanna og áhugamanna um myndlist í Garðabæ lagður fram. Bæjarráð staðfestir samninginn. Samningurinn er til þriggja ára, 2024-2026, með fastri árlegri fjárhæð kr. 1.900.000.
Málsnúmer 2404442
10
Erindi Hjólreiðafélags Reykjavíkur varðandi fjallahjólamót í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, dags. 21. apríl 2024.
Erindi Hjólreiðafélags Reykjavíkur um heimild til að halda fjallahólamót þann 8. júní 2024, í staðinn fyrir Bláalónsþraut, sem ekki er hægt að setja á dagskrá vegna jarðhræringa í Grindavík. Gert er ráð fyrir hjólaleið í gegnum nokkur sveitarfélög. Rásmark í Heiðmörk og hjólað á veginum í áttina að Kaldárseli, kringum Búrfell og aftur til baka.
Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs.
Málsnúmer 2301120
11
Upplýsingar um fjölda leikskólabarna og stöðu innritunar.
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 30. apríl 2024.
Fram kom að með tilkomu Urriðabóls við Holtsveg og fjölgunar í leikskóladeild Urriðaholtsskóla eru leikskólapláss í Garðabæ orðin 1520.
Þá kom fram að þrír innritunarfundir hafi verið haldnir í apríl, þar sem alls voru innrituð 297 börn með nýjar umsóknir. Einnig voru afgreiddar 240 beiðnir foreldra um flutning á börnum á milli leikskóla í sveitarfélaginu. Öllum börnum á biðlista sem fædd eru í júlí 2023 eða eldri, var boðin leikskólavist.
Í næstu úthlutun í maí munu leikskólar bjóða börnum fæddum í ágúst 2023 og fyrr leikskólapláss og í ágúst munu leikskólar bjóða börnum af biðlista í þau pláss sem þá standa til boða m.t.t. mönnunar.
Málsnúmer 2404463
12
Bréf Grindavíkurbæjar varðandi upplýsingar um stöðu leik- og grunnskóla og frístundastarfs Grindavíkur.
Lagt fram bréf Grindavíkurbæjar þar sem m.a. kemur fram að ekkert skólastarf verður í Grindavík næsta skólaár. Safnskólar fyrir leik- og grunnskóla verða lagðir af og þess í staða lögð áhersla á að börn sæki skóla næst sínu heimili.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2404471
13
Skýrsla Sorpu bs. um hátæknibrennslu.
Málsnúmer 2404492
14
Bréf SSH um breytingar á sameiginlegum reglum um sameiginlega akstursþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu og um breytingar á gjaldskrám þjónustunnar, dags. 24. apríl 2024.
Í bréfinu kemur fram að niðurstaða fundar stjórnar SSH hafi verið að senda drög að breyttum reglum og nýjum gjaldskrám til þeirra sveitarfélaga sem eru aðilar að Pant. Jafnframt verði tillagðar breytingar kynntar fyrir hagsmunasamtökum notenda.
Bréfinu fylgdu tillögur að breytingum á sameiginlegum reglum fyrir sameiginlega akstursþjónustu við fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu nr. 645/2020 og tillögur að uppfærðri gjaldskrá akstursþjónustu fatlaðs fólks.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu hjá bæjarstjóra.