Lykiltölur í skólamálum
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
34. fundur
Kynntar voru niðurstöður um hlutfall starfsmanna í leikskólum Garðabæjar eftir menntun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (2117). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 30. apríl 2024.
Fram kom að með tilkomu Urriðabóls við Holtsveg og fjölgunar í leikskóladeild Urriðaholtsskóla eru leikskólapláss í Garðabæ orðin 1520.
Þá kom fram að þrír innritunarfundir hafi verið haldnir í apríl, þar sem alls voru innrituð 297 börn með nýjar umsóknir. Einnig voru afgreiddar 240 beiðnir foreldra um flutning á börnum á milli leikskóla í sveitarfélaginu. Öllum börnum á biðlista sem fædd eru í júlí 2023 eða eldri, var boðin leikskólavist.
Í næstu úthlutun í maí munu leikskólar bjóða börnum fæddum í ágúst 2023 og fyrr leikskólapláss og í ágúst munu leikskólar bjóða börnum af biðlista í þau pláss sem þá standa til boða m.t.t. mönnunar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
03
19. fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 30. apríl 2024.
Fram kom að með tilkomu Urriðabóls við Holtsveg og fjölgun í Urriðaholtsskóla eru leikskólapláss í Garðabæ orðin 1520.
Þá kom fram að þrír innritunarfundir hafi verið haldnir í apríl, þar sem alls voru innrituð 297 börn með nýjar umsóknir. Einnig voru afgreiddar 240 beiðnir foreldra um flutning á börnum á milli leikskóla í sveitarfélaginu. Öllum börnum á biðlista sem fædd eru í júlí 2023 eða eldri, var boðin leikskólavist.
Í næstu úthlutun munu leikskólar bjóða börnum fæddum í ágúst 2023 og fyrr leikskólapláss og í ágúst munu leikskólar bjóða börnum af biðlista í þau pláss sem þá standa til boða m.t.t. mönnunar.
Leikskólanefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Upplýsingar um fjölda leikskólabarna og stöðu innritunar.
Kynnt yfirlit um fjölda barna á leik- og grunnskólaaldri skólarárið 2023-4. Einnig farið yfir stöðuna á úthlutun leikskólaplássa fyrir næsta skólaár. Í byrjun maí hafa allflest börn fædd 2021 og eldri fengið úthlutað leikskólaplássum sem og börn fædd á fyrstu sjö mánuði ársins 2022 (yngstu börnin verða eins árs í júlí).
Bæjarráð Garðabæjar
05
11. (2064). fundur
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar.
Í minnisblaðinu kemur fram að fyrsta úthlutun í leikskólum fyrir árið 2023 fór fram í febrúar. Þá fengu þau börn sem eftir voru af árgangi 2021 og eldri (vegna flutnings í sveitarfélagið) úthlutað leikskólaplássum. Önnur úthlutun stendur nú yfir og þar er verið að úthluta leikskólaplássum til barna sem fædd eru á fyrri helmingi ársins 2022. Þriðja úthlutun fer fram í ágúst og þá verður lausum plássum úthlutað til barna fædd seinni hluta árs 2022. Í öllum úthlutunum er leitast er við að systkini fari í sama leikskóla verði því viðkomið.
Leikskólanefnd Garðabæjar
06
2. fundur
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um stöðu innritunarmála í leikskólum.
Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir 2023 er hafin. Fyrsta úthlutun hefur farið fram og önnur úthlutun stendur yfir. Í annarri úthlutun er börnum sem fædd eru á fyrra helmingi ársins 2022 boðin leikskólavist. Þriðja úthlutun fer fram í ágúst á þeim plássum sem verða laus. Stærstur hluti barna er aðlagaður inn í leikskóla í ágúst þegar elsti árgangurinn hefur færst upp í grunnskóla. Börn eru jafnframt tekin inn í leikskóla allan ársins hring eftir því sem pláss losna. Leitast er við að úthluta systkinum á sama leikskóla verði því viðkomið. Áætlað er að opna nýjan leikskóla (Urriðaból) í byrjun árs 2024. Á næsta fundi leikskólanefndar verða lagðar fram frekari upplýsingar um úthlutun 2023-2024.