Beint í efni

19. fundur

29.04.2024
Leikskólanefnd Garðabæjar

19. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi

29.04.2024

Kl. 16:30 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - formaður
  • Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
  • Maria Eugenia Aleman Henriquez - varamaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Kristín Hemmert Sigurðardóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Guðrún Viktoría Skjaldardóttir - fulltrúi starfsmanna
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Sandra Hrönn Traustadóttir - fulltrúi foreldra

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2401159

01

Þróunarsjóður leikskóla - 2024 - 2025

Farið yfir umsóknir í Þróunarsjóð leikskóla. Að þessu sinni bárust 9 umsóknir frá 5 leikskólum og sótt var um samtals fyrir 8.435.000.

Málsnúmer 2404244

02

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá leikskólanum Hæðarbóli. Anna Svanborg Kristlaugsdóttir aðstoðarleikskólastjóri kynnti Leggjum við hlustir, börn hafa rödd.

Málsnúmer 2404243

03

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá leikskólanum Kirkjubóli. Ragnheiður A Haraldsdóttir leikskólastjóri kynnti verkefnið Leið til sjálfstæðis, matstofan í Kirkjubóli.

Málsnúmer 2404246

04

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá 5 ára deild Sjálandsskóla. Elín Ósk Þorsteinsdóttir leikskólastjóri kynnti verkefnið Sjö venjur kátra krakka.

Málsnúmer 2404245

05

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá 5 ára deild Sjálandsskóla. Elín Ósk Þorsteinsdóttir leikskólastjóri kynnti verkefnið Brú á milli leikskóla og grunnskóla - Börn í samvinnu.

Málsnúmer 2404247

06

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá Urriðaholtsskóla. Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri kynnti verkefnið Drullueldhús.

Málsnúmer 2404242

07

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá Urriðaholtsskóla. Þorgerður Anna Arnardóttir skólastjóri kynnti verkefnið Öll börn eru okkar börn.

Málsnúmer 2404248

08

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá leikskólanum Lundabóli. Björg Helga Geirsdóttir leikskólastjóri kynnti verkefnið Babblar persónur - máltaka yngstu barnanna.

Málsnúmer 2404249

09

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá leikskólanum Lundabóli. Björg Helga Geirsdóttir leikskólastjóri kynnti verkefnið Að efla orðaforða og hugtök í gegnum leik.

Málsnúmer 2404250

10

Þróunarsjóður leikskóla - umsókn

Umsókn í Þróunarsjóð frá leikskólanum Lundabóli. Björg Helga Geirsdóttir leikskólastjóri kynnti verkefnið Leikur að læra.

Málsnúmer 2301120

11

Lykiltölur í leikskólastarfi - Staða innritunar - apríl 2024

Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs gerði grein fyrir minnisblaði um stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar, dags. 30. apríl 2024.

Fram kom að með tilkomu Urriðabóls við Holtsveg og fjölgun í Urriðaholtsskóla eru leikskólapláss í Garðabæ orðin 1520.

Þá kom fram að þrír innritunarfundir hafi verið haldnir í apríl, þar sem alls voru innrituð 297 börn með nýjar umsóknir. Einnig voru afgreiddar 240 beiðnir foreldra um flutning á börnum á milli leikskóla í sveitarfélaginu. Öllum börnum á biðlista sem fædd eru í júlí 2023 eða eldri, var boðin leikskólavist.

Í næstu úthlutun munu leikskólar bjóða börnum fæddum í ágúst 2023 og fyrr leikskólapláss og í ágúst munu leikskólar bjóða börnum af biðlista í þau pláss sem þá standa til boða m.t.t. mönnunar.