2. fundur
2. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
12.08.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Eydís Sigurðardóttir - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Rósanna Andrésdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
- Jóhanna Gunnarsdóttir - fulltrúi kennara
Ritari
- Hanna Halldóra Leifsdóttir
Dagskrá
01
Lykiltölur í skólamálum
Lagt var fram minnisblað um stöðu innritunar í leikskóla í Garðabæ haustið 2026. Fram kom að öllum börnum fæddum í október 2025 og fyrr hafi verið boðin leikskólavist og að 20 börn í þeim aldurshópi séu nú á biðlista, vegna umsókna sem borist hafa undanfarnar vikur eftir að innritun lauk í vor. Þá var gerð grein fyrir áætluðum fjölda barna í leikskólum bæjarins í október 2026 og stöðu mönnunar. Leikskólanefnd fagnar góðri stöðu innritunar og leggur áherslu á að áfram verði fylgst vel með þróun innritunar og mönnunar með það að markmiði að tryggja góða leikskólaþjónustu í Garðabæ.
02
Verklag um eftirlit með sjálfstætt starfandi leikskólum -drög
Lögð voru fram drög að verklagsreglum um eftirlit Garðabæjar með sjálfstætt starfandi leikskólum. Leikskólanefnd fagnar fjölbreyttu leikskólastarfi í bænum og leggur áherslu á að skýrt og gagnsætt verklag styðji við samræmt og málefnalegt eftirlit með gæðum, öryggi og starfsemi leikskóla. Góðar og gagnlegar umræður fóru fram, meðal annars um að formfesta einnig verklag um eftirlit með bæði bæjarreknum og sjálfstætt starfandi leikskólum. Leikskólafulltrúa var falið að vinna úr ábendingum nefndarmanna og leggja málið að nýju fyrir nefndina.