5. fundur
5. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
09.05.2023
Kl. 16:30 - 19:14
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Haukur Þór Hauksson - aðalmaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Björg Helga Geirsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Ásta Möller Sívertsen - fulltrúi starfsmanna
- Eydís Sigurðardóttir - fulltrúi foreldra
- Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
Ritari
- Linda Udengard
Dagskrá
01
Leyfi til daggæslu
Umsókn um endurnýjun á starfsleyfi dagforeldris. Ana hefur óskað eftir endurnýjun á starfsleyfi. Búið er að fara í eftirlitsheimsókn. Ana hefur ekki skilað inn öllum gögnum til GEV. Þegar hún hefur lokið því mun fara umsögn frá sveitarfélaginu þar sem mælt verður með endurnýjun.
Lagt fram umsókn um endurnýjun á leyfi dagforeldris. Leikskólanefnd mælir með endurnýjun á starfsleyfi. Gæða- og eftirlitsstofnun Velferðamála fjallar um leyfisveitinguna á grundvelli umsagnar frá leikskólafulltrúa.
02
Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Umsókn um leyfi til daggæslu. Kamara Emmanuella Oduh hefur sótt um til Gæða og eftirlitsstofunar velferðarmála að gerast dagforeldri. Hún hefur skilað inn öllum tilskyldum leyfum. Búið er að fara og skoða aðstæður til daggæslu og eru þær fullnægjandi. Sveitarfélagið á eftir að senda staðfestingu til GEV. Verður það gert eftir kynningu á fundi leikskólanefndar.
Lagt fram umsókn um nýtt starfsleyfi dagforeldris. Leikskólanefnd mælir með að starfsleyfið verði veitt. Gæða- og eftirlitsstofnun Velferðarmála fjallar um leyfisveitinguna á grundvelli umsagnar frá leikskólafulltrúa.
03
Þróunarverkefni í leik- og grunnskóla
Kynning á fyrirhugðu þróunarverkefni 5 ára deildar í Sjálandsskóla.
Kynnt þróunarverkefni í Sjálandsskóla frá og með næsta skólaári en þar verður starfrækt fimm ára deild til reynslu í eitt ár. Leikskóladeildin er sjálfstæð eining en vinnur í samstarfi við Sjálandsskóla. Leikskóladeild Flataskóla verður ekki rekin í skólanum frá og með haustinu 2023.
04
Vinnuhópur um bætt starfumhverfi leikskóla í Garðabæ
Upplýsingar um vinnuhóp um bætt starfumhverfi leikskóla í Garðabæ.
Að störfum er starfsteymi sem hefur það að markmiði að móta tillögur um bætt starfsumhverfi starfsfólks og barna í leikskólum Garðabæjar.
Í teyminu eru einstaklingar frá leikskólum með mikla þekkingu á stjórnun og leikskólastarfi. Unnið er undir hratti hugmyndafræði sprettavinnu og markmiðið er að skila tillögum í þessum mánuði.
05
Lykiltölur í skólamálum
Upplýsingar um fjölda leikskólabarna og stöðu innritunar.
Kynnt yfirlit um fjölda barna á leik- og grunnskólaaldri skólarárið 2023-4. Einnig farið yfir stöðuna á úthlutun leikskólaplássa fyrir næsta skólaár. Í byrjun maí hafa allflest börn fædd 2021 og eldri fengið úthlutað leikskólaplássum sem og börn fædd á fyrstu sjö mánuði ársins 2022 (yngstu börnin verða eins árs í júlí).
06
Erindi til skólanefnda leik- og grunnskóla frá Hjallastefnunni
Leikskólanefnd samþykkti að taka eitt mál með afbrigðum. Um er að ræða erindi til skólanefndar leik- og grunnskóla frá Hjallastefnunni. Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar óskar eftir að færa skipulagsdaginn 25. september til 13. október vegna árlegs starfsdags Hjallastefnunnar. Leikskólanefnd samþykkir erindið en áréttar að starfsdagar í Garðabæ eru samræmdir hjá leik- og grunnskólum og mikilvægt er að halda því fyrirkomulagi.
07
Þróunarsjóður leikskóla 2023
Upplýsingar um umsóknir í þróunarsjóð leikskóla.
Áheyrnarfulltrúar leikskólanefndar viku af fundi undir þeim liðum fundar þar sem fjallað var um úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla.
Úthlutað var úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar 2023. Markmið með sjóðnum er að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi leikskóla. Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 6.954.000, í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust níu umsóknir og voru allar umsóknir samþykktar. Leikskólanefnd fagnar áhugaverðum umsóknum sem bera vitni um metnaðarfullt leikskólastarf í Garðabæ.
14
Þróunarsjóður leikskóla - Regnbogaskjóður- framhald - málörvun með sögum, söngvum og leik
Samþykkt
16
Þróunarsjóður leikskóla - Leggjum við hlustir, börn hafa rödd - Lýðræðisleg vinnubrögð í leikskólastarfi
Samþykkt