Beint í efni

Þróunarverkefni í leik- og grunnskóla

Málsnúmer 2304499

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

6. fundur

Búið er að gera ráðningarsamning við Elínu Ósk Þorsteinsdóttur leikskólakennara. Hún mun taka að sér að stýra 5 ára leikskóladeild í Sjálandsskóla. Þar er gert ráð fyrir 40 barna einingu sem starfrækt verður frá 15. ágúst 2023. Um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs.

Leikskólafulltrúi greindi frá nýstofnaðri leikskóladeild í Sjálandsskóla. Deildin verður fyrir 5 ára börn og leikskólastjóri verður Elín Ósk Þorsteinsdóttir. Deildin opnar 15. ágúst fyrir allt að 40 börn og megináherslan í starfinu verður lögð á félagsfærni, vináttu og samvinnu. Einnig verður útikennsla stór þáttur í starfsemi deildarinnar.

Leikskólanefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Kynning á fyrirhugðu þróunarverkefni 5 ára deildar í Sjálandsskóla.

Kynnt þróunarverkefni í Sjálandsskóla frá og með næsta skólaári en þar verður starfrækt fimm ára deild til reynslu í eitt ár. Leikskóladeildin er sjálfstæð eining en vinnur í samstarfi við Sjálandsskóla. Leikskóladeild Flataskóla verður ekki rekin í skólanum frá og með haustinu 2023.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

03

9. fundur

Sagt var frá þróunarverkefni í Sjálandsskóla frá og með næsta skólaári en þar verður starfrækt 5. ára deild til reynslu í eitt ár. Leikskóladeild Flataskóla verður ekki rekin í skólanum frá og með haustinu 2023.