9. fundur
9. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
í Sjálandsskóla
03.05.2023
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir - aðalmaður
- Hannes Ingi Geirsson - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - grunn- og tónlistarskólafulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Jóhann Skagfjörð Magnússon - fulltrúi skólastjóra
- Hjörtur Jónsson - fulltrúi foreldra
- Ragnheiður Stephensen - fulltrúi kennara
Ritari
- Edda Björg Sigurðardóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2304498
01
Innleiðing farsældar í Garðabæ
Kolbrún Þorkelsdóttir verkefnisstjóri sagði frá innleiðingu þjónustu í þágu farsældar barna í Garðabæ.
Málsnúmer 2212136
02
Verkferlar er varða aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir o.fl. í húsnæði stofnana bæjarins.
Guðbjörg Brá Gísladóttir sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæjar og Alma Dagbjört Ívarsdóttir frá Mannvit, kynnti stöðu framkvæmda grunnskólum í tengslum við rakaskemmdir í húsnæði sveitarfélagsins.
Málsnúmer 2301358
03
Grunnskólar 2023-2024
Farið yfir innritanir og nemendafjölda í Garðabæ vegna skólaársins 2023-2024.
Málsnúmer 2303450
04
Erindi til skólanefnda leik- og grunnskóla frá Hjallastefnunni
Framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar óskar eftir að færa skipulagsdaginn 25. september til 13. október vegna árlegs starfsdags Hjallastefnunnar. Skólanefnd samþykkir erindið enda tryggi skólinn opnun frístundaheimilisins eins og tíðkast á starfsdögum fyrir þá sem þess óska.
Málsnúmer 2304499
05
Þróunarverkefni í leik- og grunnskóla
Sagt var frá þróunarverkefni í Sjálandsskóla frá og með næsta skólaári en þar verður starfrækt 5. ára deild til reynslu í eitt ár. Leikskóladeild Flataskóla verður ekki rekin í skólanum frá og með haustinu 2023.
Málsnúmer 2304500
06
Kynning og samtal við skólastjórnendur í Sjálandskóla
Skólanefnd þakkar skólastjórnendum Sjálandsskóla fyrir áhugaverða kynningu og lýsir ánægju með að kynnast skólanum og skólastarfinu með þessum hætti. Skólastjóri fór yfir nemendafjölda, mönnun, aðstæður og framtíðarhorfur.