Beint í efni

Þróunarsjóður leikskóla 2023

Málsnúmer 2303069

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

5. fundur

Upplýsingar um umsóknir í þróunarsjóð leikskóla.

Áheyrnarfulltrúar leikskólanefndar viku af fundi undir þeim liðum fundar þar sem fjallað var um úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla.
Úthlutað var úr þróunarsjóði leikskóla Garðabæjar 2023. Markmið með sjóðnum er að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi leikskóla. Leikskólanefnd leggur til við bæjarráð að úthlutað verði úr Þróunarsjóði Garðabæjar kr. 6.954.000, í samræmi við reglur sjóðsins. Að þessu sinni bárust níu umsóknir og voru allar umsóknir samþykktar. Leikskólanefnd fagnar áhugaverðum umsóknum sem bera vitni um metnaðarfullt leikskólastarf í Garðabæ.

Leikskólanefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Markmið þróunarsjóðs leikskóla er að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi leikskóla í Garðabæ. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn að vori. Árlega eru skilgreindir áhersluþættir sjóðsins og hluti af úthlutunarfé tengt þeim.
Upplýsingar má finna á: https://www.gardabaer.is/ibuar/skolar-og-daggaesla/throunarsjodir/uthlutanir/

Leikskólanefnd samþykkir að áhersluþættir Þróunarsjóðs leikskóla fyrir árið 2023-2024 tengist Menntastefnu Garðabæjar: farsæld, samskipti, fjölbreytileiki, lýðræði og skólabragur. Leikskólafulltrúa er falið að auglýsa eftir umsóknum í sjóðinn samkvæmt gildandi reglum.