2. fundur
2. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
07.03.2023
Kl. 16:30 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - formaður
- Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður
- Finnur Jónsson - aðalmaður
- Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Sigurborg K Kristjánsdóttir - leikskólafulltrúi
- Björg Helga Geirsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Ásta Möller Sívertsen - fulltrúi starfsmanna
- Eydís Sigurðardóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Linda Udengård
Dagskrá
Málsnúmer 2302127
01
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2022
Á fundi bæjarráðs 14.2.2023 var lögð fram til kynningar niðurstöður íbúa- og þjónustukönnunar meðal íbúa Garðabæjar. Bæjarráð vísaði þjónustukönnunni til umfjöllunar nefnda.
Hulda Hauksdóttir kynnti íbúa- og þjónustukönnun meðal íbúa Garðabæjar. Almennt hækkar ánægja íbúa með þjónustu bæjarins á árinu 2022 og þegar á heildina er litið eru íbúar í Garðabæ ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2301120
02
Staða innritunar í leikskóla Garðabæjar
Lagðar fram til kynningar upplýsingar um stöðu innritunarmála í leikskólum.
Innritun í leikskóla Garðabæjar fyrir 2023 er hafin. Fyrsta úthlutun hefur farið fram og önnur úthlutun stendur yfir. Í annarri úthlutun er börnum sem fædd eru á fyrra helmingi ársins 2022 boðin leikskólavist. Þriðja úthlutun fer fram í ágúst á þeim plássum sem verða laus. Stærstur hluti barna er aðlagaður inn í leikskóla í ágúst þegar elsti árgangurinn hefur færst upp í grunnskóla. Börn eru jafnframt tekin inn í leikskóla allan ársins hring eftir því sem pláss losna. Leitast er við að úthluta systkinum á sama leikskóla verði því viðkomið. Áætlað er að opna nýjan leikskóla (Urriðaból) í byrjun árs 2024. Á næsta fundi leikskólanefndar verða lagðar fram frekari upplýsingar um úthlutun 2023-2024.
Málsnúmer 2301140
03
Skóladagatal leik- og grunnskóla 2023-2024
Lögð fram til samþykktar tillaga að skóladagatali leikskóla Garðabæjar 2023-24.
Leikskólanefnd samþykkir framlagða tillögu af skóladagatali leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2023-2024.
Málsnúmer 2301119
04
Verklag vegna fáliðunar í leikskólum Garðabæjar
Á fundi leikskólanefndar þann 10.01.2023 voru lögð fram drög að verkferli vegna manneklu í leikskólum Garðabæjar. Lögð fram tillaga til samþykktar í samræmi við athugsemdir sem fram komu á fundinum.
Leikskólanefnd samþykkir verklagsreglur vegna fáliðunar/manneklu í leikskólum og felur leikskólafulltrúa að kynna verkferilinn fyrir hagaðilum.
Málsnúmer 2303070
05
Starfsemi leikskóla milli jóla- og nýárs og í páskaviku
Lögð fram tillaga leikskólanefndar að niðurfellingu á leikskólagjöldum kjósi foreldra að hafa börn sín í leyfi milli jóla- og nýars og/eða í páskaviku.
Leikskólanefnd leggur til og samþykkir tillögu um niðurfellingu á leikskólagjöldum kjósi foreldrar að hafa börn sín í leyfi milli jóla- og nýárs og/eða í páskaviku (Dymbilviku). Nefndin vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 2303069
06
Þróunarsjóður leikskóla 2023
Markmið þróunarsjóðs leikskóla er að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi leikskóla í Garðabæ. Auglýst er eftir umsóknum í sjóðinn að vori. Árlega eru skilgreindir áhersluþættir sjóðsins og hluti af úthlutunarfé tengt þeim.
Upplýsingar má finna á: https://www.gardabaer.is/ibuar/skolar-og-daggaesla/throunarsjodir/uthlutanir/
Leikskólanefnd samþykkir að áhersluþættir Þróunarsjóðs leikskóla fyrir árið 2023-2024 tengist Menntastefnu Garðabæjar: farsæld, samskipti, fjölbreytileiki, lýðræði og skólabragur. Leikskólafulltrúa er falið að auglýsa eftir umsóknum í sjóðinn samkvæmt gildandi reglum.