Umsókn um leyfi til daggæslu barna í heimahúsi
Málsnúmer 2303284
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Umsókn um leyfi til daggæslu. Kamara Emmanuella Oduh hefur sótt um til Gæða og eftirlitsstofunar velferðarmála að gerast dagforeldri. Hún hefur skilað inn öllum tilskyldum leyfum. Búið er að fara og skoða aðstæður til daggæslu og eru þær fullnægjandi. Sveitarfélagið á eftir að senda staðfestingu til GEV. Verður það gert eftir kynningu á fundi leikskólanefndar.
Lagt fram umsókn um nýtt starfsleyfi dagforeldris. Leikskólanefnd mælir með að starfsleyfið verði veitt. Gæða- og eftirlitsstofnun Velferðarmála fjallar um leyfisveitinguna á grundvelli umsagnar frá leikskólafulltrúa.