Beint í efni

4. fundur

14.10.2026
Leikskólanefnd Garðabæjar

4. fundur

Leikskólanefnd Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

14.10.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
  • Páll Árnason - aðalmaður
  • Eydís Sigurðardóttir - aðalmaður
  • Inga Rós Reynisdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
  • Hanna Halldóra Leifsdóttir - leikskólafulltrúi
  • Elín Ósk Þorsteinsdóttir - fulltrúi leikskólastjóra
  • Jóhanna Gunnarsdóttir - fulltrúi kennara

Ritari

  • Hanna Halldóra Leifsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2610115

01

Menningardagskrá fyrir leikskólahópa

Þessi dagskrárliður frestast til næsta fundar leikskólanefndar.

Málsnúmer 2301120

02

Lykiltölur í skólamálum

Leikskólafulltrúi kynnti stöðu innritunar í leikskólum Garðabæjar. Öll börn sem fædd eru í nóvember og desember 2025 eru komin með boð um leikskóladvöl þegar þau ná eins árs aldri. Einnig verður hægt að bjóða stórum hluta barna sem fædd eru í janúar 2026 leikskólapláss. Leikskólanefnd lýsir yfir ánægju með stöðu innritunarmála.

Málsnúmer 2610036

03

Menntadagur leik- og grunnskóla 2026

Rætt var um Menntadag Garðabæjar 2026 sem haldinn verður þann 30. október nk. Kynnt voru drög að dagskrá þar sem megin áhersla er á tengsl barna og skóla. Einnig verða kynnt þau verkefni sem hlotið hafa styrk úr Þróunarsjóðum Garðabæjar á árunum 2023-2026.

Málsnúmer 2609187

04

Forvarnavika Garðabæjar 2026

Kynnt voru drög að dagskrá Forvarnarviku Garðabæjar sem haldin verður 4.-11. nóvember nk. Allir leik- og grunnskólar bæjarins verða með dagskrá á sínum starfsstöðum auk þess sem haldinn verður fræðslufundur fyrir foreldra um mikilvægi tengsla foreldra, barna og skóla.

Málsnúmer 2609525

05

Frumvarp til laga um innritun í leikskóla, 80. mál.

Leikskólafulltrúi kynnti frumvarp til laga um breytingu á lögum um leikskóla. Markmið breytinganna er að gefa sveitarfélögum auknar heimildir til að forgangsraða innritun með hliðsjón af fjölskylduaðstæðum.