Stekkholt 22 - Dsk.br.
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
6. fundur
Lögð fram breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður er varðar lóðina Stekkholt 22 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2 mgr. 43. gr. og 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 118/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
7. (940). fundur
"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, í tilefni af umsókn um breytingu sem nær til einbýlishúsalóðarinnar Stekkholts 22, sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur færist til austurs og að byggingarmagn aukist.
Grenndarkynna skal eigendum Stekkholts 20, 51 og 53 sem og Vorbrautar 17 og 19. Ennfremur eigendum Þrymsala 18 og 19 og Þrúðsala 16, 17 og 18 í Kópavogi." (Mál nr. 2402558)
Bæjarráð Garðabæjar
04
16. (2117). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, í tilefni af umsókn um breytingu sem nær til einbýlishúsalóðarinnar Stekkholts 22, sem gerir ráð fyrir að byggingarreitur færist til austurs og að byggingarmagn aukist.
Grenndarkynna skal eigendum Stekkholts 20, 51 og 53 sem og Vorbrautar 17 og 19. Ennfremur eigendum Þrymsala 18 og 19 og Þrúðsala 16, 17 og 18 í Kópavogi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
5. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til einbýlishúslóðarinnar Stekkholt 22 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur færist til austurs og að byggingarmagn aukist.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Stekkholts 20, 51 og 53 sem og Vorbrautar 17 og 19. Ennfremur eigendum Þrymsala 18 og 19 og Þrúðsala 16,17 og 18 í Kópavogi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
4. fundur
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til einbýlishúslóðarinnar Stekkholt 22.
Umsögn deiliskipulagshöfundar lögð fram.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem nær til einbýlishúslóðarinnar Stekkholt 22.
Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.