Beint í efni

8. fundur

20.06.2024
Skipulagsnefnd Garðabæjar

8. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

20.06.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigþrúður Ármann - varamaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Formaður bar upp þá tillögu að þrjú mál sem ekki voru í fundarboði yrðu lögð fyrir fundinn og var það samþykkt. Málin eru fundarliðir nr. 11, 12 og 13 í fundargerð þessari.

Dagskrá

Málsnúmer 2403504

01

Hnoðraholt norður - Þorraholt 2-4 - Dsk.br.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2406553

02

Vorbraut 2-6 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um fjölgun íbúðareininga á hverri lóð um 3. Samkvæmt tillögu að breytingu deiliskipulags og aðalskipulags sem eru í vinnslu hefur verið gert ráð fyrir fjölgun um 2 íbúðir á hverri lóð sunnan Vorbrautar. Skipulagsnefnd fellst ekki á að íbúðum sé fjölgað meir en um tvær íbúðareiningar á hverri fjölbýlishúsalóð sunnan Vorbrautar.

Málsnúmer 2405011

03

Stekkholt 9-23 Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að heimilað verði að byggja kjallara undir raðhúsin og að raðhúseiningum fjölgi um eina og að gera megi ráð fyrir tveimur íbúðareiningum í hverri raðhúseiningu.

Skipulagsnefnd fellst ekki á að gert sé ráð fyrir tveimur íbúðareiningum í hverri raðhúseiningu.

Tillögu að öðru leyti vísað til tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem er í vinnslu.

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2406081

04

Krókamýri 74 bílastæði graseyja-Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um aðkomu að lóðinni framan við parhúsið Krókamýri 74. Með tillit til aðstæðna gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að graseyja styttist um allt að 2 metra en hafa þarf samráð við umhverfissvið um framkvæmdir og kostnað.

Málsnúmer 2403195

05

Grásteinsmýri - dsk br. Breiðamýri

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Breiðumýrar sem nær til fjölbýlishúsa við Grásteinsmýri að lokinni auglýsingu. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir sem bárust lagðar fram.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2405525

06

Gásamýri 14-28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á raðhúsum við Gásamýri 14-28.

Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2405524

07

Gásamýri 2-12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á raðhúsum við Gásamýri 2-212.

Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 2405476

08

Vörðugata 2 Gólfplata -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu bílakjallara að fjölbýlishúsinu þar sem óskað er eftir því að gólf bílakjallara verði 30 cm neðar en skilgreindur gólfkóti á hæðarblaði.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hæð bílakjallara varðar eins og fyrirspurn lýtur að.

Málsnúmer 2406545

09

Aðalskipulag Reykjavíkur - Breyting - Nærþjónustukjarni innan íbúðarbyggðar í Skerjafirði

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna.

Málsnúmer 2406357

10

Ask. Hafnarfjarðar - Breyting vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vestur

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við skipulagslýsinguna.

Málsnúmer 2406764

11

Bæjargil 3 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að heimilaður verði niðurgrafinn gluggalaus kjallari bílageymslu sem byggingarreitur hefur verið skilgreindur fyrir.

Skipulagsnefnd bendir á að ekkert deiliskipulag sé í gildi fyrir Bæjargil en tillaga að deiliskipulagi er í auglýsingu.

Skipulagsnefnd mælir með því að sótt verði um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni og gerir nefndin ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu þess efnis til grenndarkynningar. Nefndin bendir á að við framkvæmdir þurfi að taka tillit til þeirra mannvirkja sem eru á aðliggjandi lóð þar sem byggingarreitur er við lóðarmörk.

Málsnúmer 2009654

12

Suðurtún 20 - skjólveggur -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Lögð fram fyrirspurn um hæð girðingar á lóðarmörkum að opnu svæði milli Suðurtúns 18 og 20 og fyrirhugaðrar byggðar við Hestamýri.

Með tilliti til aðstæðna gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að vikið verði frá hæð girðinga á umræddum lóðarmörkum samkvæmt samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar á meðan að girðingin er ekki hærri en 1,8 m.

Málsnúmer 2305147

13

Hraungarðar - Garðprýði 1 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðarinnar að Hraungörðum

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert verði ráð fyrir byggingarreit fyrir nýja byggingu verði í suðausturhorni núverandi lóðar. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.

Málsnúmer 2406010F

14

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 6

Fundargerð lögð fram. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við afgreiðslur skipulagsstjóra.

14.1 - 2404346 - Vorbraut 1 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Vorbraut 1, Hnoðraholti.Óskað var eftir umsögn deiliskipulagshöfundar, sem gerði athugasemdir, sem síðan hefur verið brugðist við.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

14.2 - 2404411 - Vorbraut 37-47 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Vorbraut 37-47. Skipulagsstjóri vísar uppdráttum til umsagnar hjá skipulagshöfundi.

14.3 - 2404300 - Skerpluholt 6, 8, 10 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram umsögn skipulagshöfundar um fyrirspurn sem varðar útfærslu á byggingunum.
Skipulagsstjóri tekur undir umsögnina og í henni er að finna svör við fyrirspurn.

14.4 - 2405331 - Ægisgrund 5 smáhýsi -Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn vegna smáhýsis við Ægisgrund 5, ásamt undirskriftum frá eigendum aðliggjandi lóða.
Hámarksstærð smáhýsis er 15 m² og hámarkshæð 2,5 m. Fyrirhuguð staðsetning smáhýsis er við lóðarmörk Ægusgrundar 3 og 2 m frá lóðarmörkum Garðabæjar.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við staðsetningu og hæð smáhýsis við Ægisgrund 5, meðan útfærsla þess er í samræmi við innsend gögn.

14.5 - 2405333 - Smáraflöt 26 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi á gróðurhúsi við Smáraflot 26.
Samkvæmt teikningum er stærð gróðurhúss 18,74 m² og hæð þess 2,74 m.
Deiliskipulag Flata kveður á um að heimiluð eru gróðurhús á lóð sem uppfylla kröfur um hámarkshæðir og önnur skilyrði um smáhýsi sem eru undanþegin byggingarleyfi.
Samkvæmt 2.3.5. gr. byggingarreglugerðar, minniháttar mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og leyfi, lið f. kemur fram eftirfarandi:
Smáhýsi sem er að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs. Sé smáhýsið minna en 3,0 m frá aðliggjandi lóð þarf samþykki eigenda aðliggjandi lóðar.
Með tilliti til ákvæða deiliskipulags Flata er varðar stærð og hæð gróðurhúss/smáhýsis á lóð gerir skipulagsstjóri athugasemd við veitingu byggingarleyfis nema að breyting deiliskipulags liggi fyrir.

14.6 - 2405156 - Skerpluholt 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Skerpluholt 7, ásamt samþykki nærliggjandi lóðarhafa vegna smáhýsis og girðingar á lóðarmörkum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.

14.7 - 2406091 - Brekkugata 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram fyrirspurn um stækkun á sérafnotarreit við Brekkugötu 3, íbúð 0103, ásamt afriti af samþykktum allra þinglýstra eigenda að Brekkugötu 1-3. Breytingin gerir ráð fyrir stækkun úr 11 m² í 30 m². Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við breyttri legu og stærð sérafnotarreits, meðan útfærsla hans er í samræmi við innsenda uppdrætti og á meðan þeir eru í samræmi við ákvæði um skjólveggi, girðingar og sérnotareiti lóðar í gildandi deiliskipulagi (sjá breytingu á deiliskipulagi í maí 2020). Því skulu skjólveggir sem liggja samhliða húsvegg ekki vera hærri en 90 cm.

14.8 - 2402558 - Stekkholt 22 - Dsk.br.

Lögð fram breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður er varðar lóðina Stekkholt 22 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 2 mgr. 43. gr. og 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 118/2022.