Beint í efni

Suðurtún 20 - skjólveggur -Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2009654

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn um hæð girðingar á lóðarmörkum að opnu svæði milli Suðurtúns 18 og 20 og fyrirhugaðrar byggðar við Hestamýri.
Með tilliti til aðstæðna gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að vikið verði frá hæð girðinga á umræddum lóðarmörkum samkvæmt samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar á meðan að girðingin er ekki hærri en 1,8 m.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hæð á skjólvegg á lóðarmörkum.
Vísað er til þess að í nágrenninu rísi fjölbýlishús.
Svar: Við mótun deiliskipulags í Breiðumýri var sérstaklega tekið tillit til athugasemdar um hæð fjölbýlishúss á þessum stað. Sett voru ákvæði um að á byggingarreit næst Suðurtúni yrði aðeins 1 hæð heimiluð.
Skipulagsnefnd sér ekki ástæðu til þess að á þessum stað sé vikið frá því ákvæði í reglum um girðingu lóða á Álftanesi að hæð girðinga á lóðarmörkum að opnu svæði sé hærri en 1,5 m.
Tækni- og umhverfissviði falið að móta tillögu að viðmiðunarreglum fyrir girðingar og skjólveggi í Garðabæ.

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

12. fundur

Lögð fram fyrirspurn um það hvort heimilað verði að reisa skjólveggi á lóðarmörkum 1,8 m. Vísað til umfjöllunar í Skipulagsnefnd.