Stekkholt 9-23 Deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 2405011
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
8. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að heimilað verði að byggja kjallara undir raðhúsin og að raðhúseiningum fjölgi um eina og að gera megi ráð fyrir tveimur íbúðareiningum í hverri raðhúseiningu.
Skipulagsnefnd fellst ekki á að gert sé ráð fyrir tveimur íbúðareiningum í hverri raðhúseiningu.
Tillögu að öðru leyti vísað til tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem er í vinnslu.
Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.