EKKI NOTA - Gásamýri 2-12 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
15. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslóðanna Gásamýri 2-6 og 8-12. Breidd byggingarreita 8-12 stækka úr 10 m í 12 m en á Gásamýri 2-6 úr 10 m í 12. Sipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Króks í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal öðrum lóðarhöfum við Gásamýri og Svanamýri 21-29.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á 1 hæðar raðhúslengjum við Gásamýri ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Samkvæmt hugmyndinni myndu byggingarreitir þriggja raðhúslengja af fjórum ná 3-7 metra út fyrir landnotkunarreit íbúðarbyggðar í aðalskipulagi inn á opið svæði. Í aðalskipulagi er opna svæðið skilgreint sem mikilvæg sjónlína en lóðir raðhúsanna ná lítillega inn á opna svæðið skv gildandi deiliskipulagi. Samkvæmt fyrirspurn myndu viðkomandi lóðir færast lengra inn á opna svæðið.
Í umsögn skipulagshöfundar kemur fram að breytingarnar teljist jákvæðar hvað útfærslu húsanna varðar.Skipulagsnefnd tekur undir það sjónarmið.
Þar sem tillagan gerir ráð fyrir að horn byggingarreits raðhúslengjunnar Gásamýrar 2-6 fari aðeins 3 metra út fyrir landnotkunarreit íbúðarbyggðar og 8-12 lítillega gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að skipulagsstjóri afgreiði hana sem óverulega breytingu deiliskipulags Króks.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á raðhúsum við Gásamýri 2-212.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.