Beint í efni

Bæjargil 3 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu

Málsnúmer 2406764

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir því að heimilaður verði niðurgrafinn gluggalaus kjallari bílageymslu sem byggingarreitur hefur verið skilgreindur fyrir.
Skipulagsnefnd bendir á að ekkert deiliskipulag sé í gildi fyrir Bæjargil en tillaga að deiliskipulagi er í auglýsingu.
Skipulagsnefnd mælir með því að sótt verði um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni og gerir nefndin ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu þess efnis til grenndarkynningar. Nefndin bendir á að við framkvæmdir þurfi að taka tillit til þeirra mannvirkja sem eru á aðliggjandi lóð þar sem byggingarreitur er við lóðarmörk.