Hraungarðar - Garðprýði 1 - Umsókn um breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns vegna lóðarinnar að Hraungörðum
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Skipulagsnefnd beinir því til lóðarhafa að lagðar verði fram hugmyndir um útfærslu byggingar og aðkomu sem leitist við að koma til móts við athugasemdir og umsagnir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að 6.273 m2 lóð Hraungarða (Garðprýði 1) verði skipt upp í tvær lóðir.
Athugasemdir hafa borist frá eigendum aðliggjandi lóða.
Tillögu ásamt athugasemdum og umsögnum vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.
Bæjarráð Garðabæjar
03
24. (2125). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, frá 20. júní að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.
Tillagan varðar breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert verði ráð fyrir byggingarreit fyrir nýja byggingu verði í suðausturhorni núverandi lóðar. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir því að lóðin Garðprýði 1 (Hraungarðar) skiptist í tvær lóðir. Gert verði ráð fyrir byggingarreit fyrir nýja byggingu verði í suðausturhorni núverandi lóðar. Byggingarreitur sem nú er á stórum hluta lóðarinnar minnkar og takmarkast við núverandi hús og staðsetningu nýrrar byggingar samkvæmt tillögunni. Aðkoma að nýrri byggingu er innan lóðar Garðprýði 1.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Senda skal dreifibréf í aðliggjandi hús þar sem athygli skal vakin á auglýsingunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
4. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem gerir ráð fyrir skiptingu lóðarinnar Hraungarðar (Garðprýði 1)
Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra um tillöguna.
Skipulagsnefnd tekur undir það sem fram kemur í minnisblaði að til greina komi að skipta lóðinni upp í tvær lóðir og að nýtt hús yrði staðsett í suðausturhorni núverandi lóðar og að aðkoma yrði innan lóðarinnar. Þar sem að áberandi hraunmyndanir eru til staðar á lóðinni þarf að taka sérstaklega tillit til þeirra. Því fer nefndin fram það ef sótt er um breytingu deiliskipulags í samræmi við framangreint að ítarlegar skýringarmyndir fylgi sem sýni útfærslu húss og með hvaða hætti hún tekur tillit til hraunmyndana.
Bæjarráð Garðabæjar
06
10. (2111). fundur
Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra, dags. 26. febrúar 2024 varðandi möguleika á skiptingu lóðarinnar að Hraungörðum með tilliti til fjölgunar húsa á lóðinni.
Í niðurstöðu minnisblaðsins kemur fram að hugmyndir um skiptingu lóðarinnar fyrir raðhús eða fleiri en eitt einbýlishús gengur gegn megin markmiðum deiliskipulags Garðahrauns. Tillögu að staðsetningu eins einbýlishúss sunnan megin á lóð ásamt uppskiptingu lóðar og aðkomu innan lóðar mætti vísa til umfjöllunar í skipulagsnefnd.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Bæjarráð Garðabæjar
07
19. (2072). fundur
Í umsókninni eru kynntar hugmyndir að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Hraungörðum og uppbyggingar sérbýlishúsabyggðar á lóðinni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við umsækjanda.