19. (2072). fundur
19. (2072). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.05.2023
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 2303021
01
Lautargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dalhúsum ehf., kt. 541201-4830, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Lautargötu 3.
Málsnúmer 2301443
02
Framkvæmdir við viðhald og endurbætur á húsnæði Flataskóla.
Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti minnisblað Mannvits varðandi stöðu útboðsgagna og kostnaðargreininga vegna fyrirhugaðra framkvæmda við viðhald og endurbætur Flataskóla.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í útboð vegna framkvæmda við viðhald og endurbætur við byggingarhluta 3, 4, 6, og 7 samkvæmt minnisblaðinu sem er allt skólahúsnæði að undanskilinni suður- og leikskólaálmu. Áfram verður unnið að valkosta- og kostnaðargreiningu vegna framkvæmda við viðhald og endurbætur á byggingarhlutum 1, 2 og 5 sem er suður- og leikskólaálma.
Málsnúmer 2305147
03
Umsókn lóðarhafa að Hraungörðum við Álftanes um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.
Í umsókninni eru kynntar hugmyndir að breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Hraungörðum og uppbyggingar sérbýlishúsabyggðar á lóðinni. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við umsækjanda.
Málsnúmer 2301223
04
Tilkynning frá Úrvinnslusjóði um greiðslur til sveitarfélaga vegna sérstakrar söfnunar, dags. 09.05.23.
Í tilkynningunni koma fram upplýsingar um fyrirkomulag á söfnun á úrgangi frá íbúðarhúsum og fyrirtækjum ásamt því að upplýsa um að tafir eru á greiðslum til sveitarfélaga fyrir tímabilið janúar til mars 2023.
Málsnúmer 2305185
05
Bréf Hestamannafélagsins Spretts varðandi reiðvegmál í upplandi Garðabæjar, dags. 08.05.23.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2301018
06
Tilkynning Landsnets um breytingu á áformum um að leggja Hamraneslínu í jörð innan bæjarmarka Garðabæjar, dags. 09.05.23.
Í tilkynningunni kemur fram að Landsnet hefur ákveðið að breyta upphaflegum áformum um legu Hamraneslínu með þeim hætti að ekki verði farið með jarðstreng innan bæjarmarka Garðabæjar.
Málsnúmer 2305207
07
Tilkynning Landsnets varðandi kynningu á Kerfisáætlun 2023-2032 - Verk og matslýsing, dags. 10.05.23.
Í tilkynningunni kemur fram að kerfisáætlun Landsnets ásamt framkvæmdaáætlun og umhverfiskýrslu er nú í opnu umsagnarferli sem stendur til 30. júní 2023.
Málsnúmer 2305196
08
Bréf Golfklúbbs Álftaness varðandi áform um að sækja um vínveitingaleyfi í golfskála að Þórukoti, dags. 10.05.23.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að Golfklúbbur Álftaness sæki um vínveitingaleyfi í golfskálanum að Þórukoti enda verði uppfyllt öll skilyrði til útgáfu leyfisins hjá sýslumanni.
Málsnúmer 2305198
09
Bréf eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga varðandi almennt eftirlit með fjármálum sveitarfélaga, dags. 09.05.23.
Í bréfinu sem sent er til allra sveitarfélaga er upplýst um þau áhersluatriði sem eftirlitsnefndin mun hafa til hliðsjónar í störfum sínum á árinu 2023.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2305222
10
Bréf Skógræktarfélags Reykjavíkur varðandi ársskýrslu 2022.
Málsnúmer 2305224
11
Bréf ÍSÍ um íþróttaþing og ársskýrslu ÍSÍ, dags. 09.05.23.
Málsnúmer 2304460
12
Staða kjarasamningsviðræðna við Starfsmannafélag Garðabæjar.
Verkfall starfsmanna í Starfsmannafélagi Garðabæjar sem starfa á leikskólum bæjarins hófst í gær og mun standa til hádegis í dag. Starfsemi leikskólanna hefur raskast verulega og hafa foreldra þurft að vera heima með börnum sínum a.m.k. hluta úr degi. Verkföll hafa verið boðuð í næstu viku á mánudag 22. maí, þriðjudag 23. maí og fimmtudag 25 maí frá opnun leikskólanna til kl. 12:00 að hádegi
Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs fór nánar yfir stöðuna í leikskólum. Tveir leikskólar eru lokaðir en í öðrum leikskólum bæjarins er veitt takmörkuð þjónusta.