Lautargata 3 - Umsókn um byggingarleyfi.
Málsnúmer 2303021
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
19. (2072). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dalhúsum ehf., kt. 541201-4830, leyfi til að byggja fjölbýlishús með 10 íbúðum að Lautargötu 3.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
5. fundur
Lagðar fram aðalteikningar fjölbýlishúss að Lautargötu 3 en samkvæmt ákvæðum deiliskipulagsbreytingar sem nær til lóðanna Lautargata 1,3 og 5 skal leggja fram aðalteikningar í skipulagsnefnd ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem athugasemd er gerð við útfærslu hjólageymslu.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagðar teikningar með því skilyrði að deiliskipulagshöfundur fallist á útfærslu á hjólageymslu.