Opnun tilboða í framkvæmdir við viðhald og endurbætur í Flataskóla sumarið 2023.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
22. (2075). fundur
Eftirfarandi tilboð bárust í framkvæmdir við viðhald og endurbætur í Flataskóla sumarið 2023.
Málningarþjónusta Hannesar og Valgeirs ehf. kr. 142.061.410
Verkfar ehf. kr. 134.933.040
K16 ehf. kr. 154.945.900
E. Sigurðsson ehf. kr. 126.666.152
Kostnaðaráætlun kr. 186.456.285
Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda E. Sigurðssonar ehf. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. (2072). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs kynnti minnisblað Mannvits varðandi stöðu útboðsgagna og kostnaðargreininga vegna fyrirhugaðra framkvæmda við viðhald og endurbætur Flataskóla.
Bæjarráð samþykkir að farið verði í útboð vegna framkvæmda við viðhald og endurbætur við byggingarhluta 3, 4, 6, og 7 samkvæmt minnisblaðinu sem er allt skólahúsnæði að undanskilinni suður- og leikskólaálmu. Áfram verður unnið að valkosta- og kostnaðargreiningu vegna framkvæmda við viðhald og endurbætur á byggingarhlutum 1, 2 og 5 sem er suður- og leikskólaálma.