Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi fyrirspurn um útfærslu bílakjallara í fjölbýlishúsinu við Vörðugötu 2.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
24. (2125). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, frá fundi 20. júní 2024, að gera ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 3.mgr. sömu greinar hvað hæð bílakjallara að Vörðugötu 2 varðar.
Fyrirspurnin varðaði útfærslu bílakjallara að fjölbýlishúsinu Vörðugötu 2 þar sem óskað er eftir því að gólf bílakjallara verði 30 cm neðar en skilgreindur gólfkóti á hæðarblaði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu bílakjallara að fjölbýlishúsinu þar sem óskað er eftir því að gólf bílakjallara verði 30 cm neðar en skilgreindur gólfkóti á hæðarblaði.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað hæð bílakjallara varðar eins og fyrirspurn lýtur að.