Krókur - svæði 2 - Gásamýri 2-28 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
12. fundur
Lögð tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Króks - Svæði 2 sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á byggingarreitum og lóðum við Gásamýri 2-12 og 14-28. Þeir sem grenndarkynning nær til hafa staðfest að þau gera ekki athugasemdir við tillöguna. Skipulagsstjóri styttir hér með tíma grenndarkynningar í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skoðast breytingartillagan því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
15. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingarreitum raðhúslóðanna Gásamýri 14-20 og 22-28. Breidd byggingarreita stækka úr 10 m í 12 m. Sipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Króks í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal öðrum lóðarhöfum við Gásamýri og Svanamýri 21-29.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á 1 hæðar raðhúslengjum við Gásamýri ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Samkvæmt hugmyndinni myndu byggingarreitir þriggja raðhúslengja af fjórum ná 3-7 metra út fyrir landnotkunarreit íbúðarbyggðar í aðalskipulagi inn á opið svæði. Í aðalskipulagi er opna svæðið skilgreint sem mikilvæg sjónlína en lóðir raðhúsanna ná lítillega inn á opna svæðið skv gildandi deiliskipulagi. Samkvæmt fyrirspurn myndu viðkomandi lóðir færast lengra inn á opna svæðið.
Í umsögn skipulagshöfundar kemur fram að breytingarnar teljist jákvæðar hvað útfærslu húsanna varðar.Skipulagsnefnd tekur undir það sjónarmið.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að skoðað verði hvort færa mætti raðhúslengjurnar Gásamýri 14-20 og 22-28 norðar þannig að þær færu ekki eins langt út fyrir landnotkunarreit.
Ef tillagan gerir ráð fyrir að byggingarreitir fari 3 metra út fyrir landnotkunarreit íbúðarbyggðar gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að skipulagsstjóri afgreiði hana sem óverulega breytingu deiliskipulags Króks.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á raðhúsum við Gásamýri 14-28.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.