Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðarinnar við Þorraholt 2-4.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
28. (2129). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar og afgreiðslu skipulagsstjóra á breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem nær til lóðanna Þorraholt 2-4.
Tillagan var auglýst 5. maí 2024 og var frestur til að gera athugasemdir við tillöguna til 13. júní 2024. Tillagan var jafnframt grenndarkynnt. Athugasemdir við tillöguna voru lagðar fram á fundi skipulagsnefndar 20. júní 2024 og var þeim vísað til úrvinnslu umhverfissviðs.
Fyrir liggur afstaða til athugasemda sem bárust og skal þeim aðilum sem gerðu athugasemdir send umsögn um þær.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi forsendum:
- Lóðirnar Þorraholt 2-4, 2a og 2b (spennustöð og dælustöð) verði sameinaðar þannig að lóðin verði 11.406 m2.
- 3.000 m² bætt við bílageymslu í kjallara.
-Nýtingarhlutfall breytist úr 2,2 í 2,4.
-Hús nr. 2 er hækkað um 2,5m, verður í sömu hæð og upphaflegt deiliskipulag gerði ráð fyrir sem samþykkt var í desember 2021.
-Breidd byggingarreits húss nr. 2 minnkar úr 25m í 22m.
-Grasþaki breytt í bílastæðaþak á húsi nr. 2.
-Austurhluti 1. hæðar í húsi nr.2 verður atvinnurými í stað bílageymslu á 2 hæðum og byggingarreitur stækkar lítillega.
-Gert er ráð fyrir akstursrömpum innan lóðamarka.
-4 kjallarar í stað 2-3 kjallara.
-Kjallari 2 verður atvinnurými.
-Staðsetning spennistöðvar er inni á lóð Þorraholti 2-4. Lóð dælustöðvar felld út.
-Svalir og skyggni mega fara út fyrir byggingareit um allt að 2,0 metra.
Samþykkt er afgreiðsla skipulagsstjóra, í samræmi við afgreiðslu skipulagsnefndar á fundi nefndarinnar 9. júlí 2024, að sú breyting verði gerð á tillögunni að hámarkshæð verði 78 metrar yfir sjávarmáli, sem er 1 metra lægri en auglýst tillaga gerir ráð fyrir. Ákvæði verði bætt við tillöguna um grænt yfirbragð bílastæðis næst Vetrarbraut.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1.mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og þá skal niðurstaða bæjarráðs auglýst, sbr. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
9. fundur
Lögð fram bókun skipulagsnefndar frá 9.júlí sl og minnisblað skipulagsstjóra vegna málsins en í því kemur fram með hvaða hætti unnið hefur að málinu frá fundi skipulagsnefndar.
Skipulagsstjóri leggur til að málið verði lagt fyrir bæjarráð (bæjarstjórn) og
deiliskipulagstillagan samþykkt með hámarkshæð húss nr.2 að Þorraholti 2-4 í 78 mys í stað 77,5 mys eins og bókun skipulagsnefndar kveður á um.
Að öðru leyti verði tillagan samþykkt eins og fram kemur í bókun
skipulagsnefndar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
27. (2128). fundur
Samkvæmt afgreiðslu skipulagsnefndar á fundi nefndarinnar 9. júlí 2024, var umsóknaraðila veittur frestur til að koma á framfæri viðbótargögnum og rökstuðningi vegna tillögunnar. Á grundvelli slíkra gagna er skipulagsstjóra heimilt að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við auglýsta tillögu hvað hámarkshæð varðar. Viðbótargögn eru í yfirferð hjá skipulagsstjóra. Afgreiðslu frestað.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu ásamt þeim umsögnum og athugasemd sem borist hafa.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi með þeim sem gerðu athugasemdir og lúta þær að áhrifum breytingarinnar á útsýni frá lóðum við Útholt. Einnig var gerð athugasemd við kynningargögn, að þau mættu vera ítarlegri. Á fundi með þeim sem athugasemdir gera voru kynntar skýringarmyndir sem sýna betur útsýnisbreytingar frá viðkomandi lóðum við Útholt. Ítarlegri gögn hafa ekki áhrif á þær athugasemdir sem gerðar eru.
Skipulagsnefnd leggur til að sú breyting verði gerð á tillögunni að hámarkshæð verði 77,5 metrar yfir sjávarmáli sem er 1,5 m lægri en auglýst tillaga gerir ráð fyrir. Ákvæði verði bætt við tillöguna um grænt yfirbragð bílastæðis næst Vetrarbraut.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Umsóknaraðila er veittur frestur á að koma á framfæri viðbótargögnum og rökstuðningi vegna tillögunnar til fimmtudagsins 11. júlí 2024 kl. 16:00. Að því gefnu að þau gögn fullnægi því að koma frekar til móts við þær athugasemdir sem gerðar hafa verið og þá eftir atvikum að fyrir liggi samþykki þeirra sem athugasemdir hafa gert, skal skipulagsfulltrúa heimilt að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við auglýsta tillögu hvað hámarkshæð varðar, fyrir hönd skipulagsnefndar. Berist fullnægjandi gögn ekki telst tillagan afgreidd eins og að framan greinir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
8. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður að lokinni auglýsingu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
6. (939). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
-Gert er ráð fyrir að lóðirnar Þorraholt 2-4, 2a og 2b (spennustöð og dælustöð) verði sameinaðar þannig að lóðin verði 11.406 m2.
-3.000 m² bætt við bílageymslu í kjallara.
-Nýtingarhlutfall breytist úr 2,2 í 2,4
-Hús nr. 2 er hækkað um 2,5m, verður í sömu hæð og upphaflegt deiliskipulag gerði ráð fyrir sem samþykkt var í desember 2021.
-Breidd byggingarreits húss nr. 2 minnkar úr 25m í 22m.
-Grasþaki breytt í bílastæðaþak á húsi nr. 2.
-Austurhluti 1. hæðar í húsi nr.2 verður atvinnurými í stað bílageymslu á 2 hæðum og byggingarreitur stækkar lítillega.
-Gert er ráð fyrir akstursrömpum innan lóðamarka.
-4 kjallarar í stað 2 - 3 kjallara.
-Kjallari -2 verður atvinnurými.
-Staðsetning spennistöðvar eru inni á lóð Þorraholti 2-4. Lóð dælustöðvar felld út.
-Svalir og skyggni mega fara út fyrir byggingareit um allt að 2,0 metra.
Vekja skal athygli eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.“ (Mál nr. 2403504)
Bæjarráð Garðabæjar
07
14. (2115). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður vegna lóðarinnar við Þorraholt 2-4. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum.
-Gert er ráð fyrir að lóðirnar Þorraholt 2-4, 2a og 2b (spennustöð og dælustöð) verði sameinaðar þannig að lóðin verði 11.406 m2.
-3.000 m² bætt við bílageymslu í kjallara.
-Nýtingarhlutfall breytist úr 2,2 í 2,4
-Hús nr. 2 er hækkað um 2,5m, verður í sömu hæð og upphaflegt deiliskipulag gerði ráð fyrir sem samþykkt var í desember 2021.
-Breidd byggingarreits húss nr. 2 minnkar úr 25m í 22m.
-Grasþaki breytt í bílastæðaþak á húsi nr. 2.
-Austurhluti 1. hæðar í húsi nr.2 verður atvinnurými í stað bílageymslu á 2 hæðum og byggingarreitur stækkar lítillega.
-Gert er ráð fyrir akstursrömpum innan lóðamarka.
-4 kjallarar í stað 2 - 3 kjallara.
-Kjallari -2 verður atvinnurými.
-Staðsetning spennistöðvar eru inni á lóð Þorraholti 2-4. Lóð dælustöðvar felld út.
-Svalir og skyggni mega fara út fyrir byggingareit um allt að 2,0 metra.
Vekja skal athygli eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17 á auglýsingunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
08
4. fundur
Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðarinnar Þorraholt 2-4.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi.
-Gert er ráð fyrir að lóðirnar Þorraholt 2-4, 2a og 2b (spennustöð og dælustöð) verði sameinaðar þannig að
lóðin verði 11.406 m2.
-3.000 m² bætt við bílageymslu í kjallara.
-Nýtingarhlutfall breytist úr 2,2 í 2,4
-Hús nr. 2 er hækkað um 2,5m, verður í sömu hæð og upphaflegt deiliskipulag
gerði ráð fyrir sem samþykkt var í desember 2021.
-Breidd byggingarreits húss nr. 2 minnkar úr 25m í 22m.
-Grasþaki breytt í bílastæðaþak á húsi nr. 2.
-Austurhluti 1. hæðar í húsi nr.2 verður atvinnurými í stað bílageymslu á 2 hæðum
og byggingarreitur stækkar lítillega.
-Gert er ráð fyrir akstursrömpum innan lóðamarka.
-4 kjallarar í stað 2 - 3 kjallara.
-Kjallari -2 verður atvinnurými.
-Staðsetning spennistöðvar eru inni á lóð Þorraholti 2-4. Lóð dælustöðvar felld út.
-Svalir og skyggni mega fara út fyrir byggingareit um allt að 2,0 metra.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda erindi til eigenda annarra eigna í Þorraholti og í Útholti 2,4,6,8 og 10 sem og Útholti 1-3, 5-9 og 11-17.