Beint í efni

Hólmatún deiliskipulagsbreyting. Dælustöð fráveitu

Málsnúmer 2403405

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (946). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. september 2024 að breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots á Álftanesi að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum, umsögnum og greinargerð umhverfissviðs þar sem lögð voru til svör við athugasemdum. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu dælustöðvar fráveitu á óbyggðu svæði vestan Hólmatúns. Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir veitumannvirki, þ.e. dælistöð fráveitu á þessum stað sem að nánar þurfi að gera ráð fyrir í deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hefur skilning á því að íbúar í námunda við staðinn hafi áhyggjur af staðsetningu stöðvarinnar, sérstaklega af bráðabirgðarráðstöfunum vegna skólphreinsunar. Málið var skoðað vel að hálfu umhverfissviðs og ráðgjafa, m.a. hvort önnur staðsetning gæti verið betri. Sjálfrennsli núverandi lagna hefur þar mikið að segja og það rask sem framkvæmdir myndu óhjákvæmilega fylgja breytingum á lögnum sem væri þá ráðist í vegna útfærslu á bráðabirgðaráðstöfunum. Niðurstaða skoðunar er sú að ekki er mælt með annarri staðsetningu en þeirri sem deiliskipulagstillagan og aðalskipulag gera ráð fyrir. Óþægindi vegnar lyktmengunar teljast óveruleg en til að koma til móts við athugasemdir þá leggur skipulagsnefnd til að bætt verði við ákvæði í tillöguna sem gerir ráð fyrir því að lífsíu (biofilter) verði komið fyrir í útblæstri bráðabirgðahreinsistöðvar. Áhrif umferðar í tengslum við rekstur teljast óveruleg og er ekki ástæða til að bregðast við þeim þætti málsins. Útsýnisskerðing samkvæmt auglýstri tillögu er nokkur á meðan að bráðabirgðaráðstafanir vegna hreinsunar eru til staðar. Skipulagsnefnd leggur til að hámarkshæð byggingar vegna hreinsistöðvar til bráðarbirgða lækki um 1 metra, úr 3 m í 2 og að hún verði niðurgrafin og umlykt grasmönum að auki. Grasmanir koma að auki til móts við athugasemdir sem lúta að hugsanlegu ónæði vegna hljóðs frá hreinsistöðinni. Mikilvægi þess að meðhöndlun fráveitu sé samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru og hafa það að tilgangi að draga úr áhrifum á umhverfið er ótvírætt. Undirbúningur vegna útfærslu á endurbættu fráveitukerfi á Álftanesi er hafin. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna, með ofangreindri breytingum á útfærslu bráðabirgðabyggingar, sem breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu að svörum við athugasemdum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

34. (2135). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 12. september 2024 að breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots á Álftanesi að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum, umsögnum og greinargerð umhverfissviðs þar sem lögð voru til svör við athugasemdum. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu dælustöðvar fráveitu á óbyggðu svæði vestan Hólmatúns.
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir veitumannvirki, þ.e. dælistöð fráveitu á þessum stað sem að nánar þurfi að gera ráð fyrir í deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd hefur skilning á því að íbúar í námunda við staðinn hafi áhyggjur af staðsetningu stöðvarinnar, sérstaklega af bráðabirgðarráðstöfunum vegna skólphreinsunar.
Málið var skoðað vel að hálfu umhverfissviðs og ráðgjafa, m.a. hvort önnur staðsetning gæti verið betri. Sjálfrennsli núverandi lagna hefur þar mikið að segja og það rask sem framkvæmdir myndu óhjákvæmilega fylgja breytingum á lögnum sem væri þá ráðist í vegna útfærslu á bráðabirgðaráðstöfunum.
Niðurstaða skoðunar er sú að ekki er mælt með annarri staðsetningu en þeirri sem deiliskipulagstillagan og aðalskipulag gera ráð fyrir.
Óþægindi vegnar lyktmengunar teljast óveruleg en til að koma til móts við athugasemdir þá leggur skipulagsnefnd til að bætt verði við ákvæði í tillöguna sem gerir ráð fyrir því að lífsíu (biofilter) verði komið fyrir í útblæstri bráðabirgðahreinsistöðvar.
Áhrif umferðar í tengslum við rekstur teljast óveruleg og er ekki ástæða til að bregðast við þeim þætti málsins.
Útsýnisskerðing samkvæmt auglýstri tillögu er nokkur á meðan að bráðabirgðaráðstafanir vegna hreinsunar eru til staðar. Skipulagsnefnd leggur til að hámarkshæð byggingar vegna hreinsistöðvar til bráðarbirgða lækki um 1 metra, úr 3 m í 2 og að hún verði niðurgrafin og umlykt grasmönum að auki. Grasmanir koma að auki til móts við athugasemdir sem lúta að hugsanlegu ónæði vegna hljóðs frá hreinsistöðinni.
Mikilvægi þess að meðhöndlun fráveitu sé samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru og hafa það að tilgangi að draga úr áhrifum á umhverfið er ótvírætt.
Undirbúningur vegna útfærslu á endurbættu fráveitukerfi á Álftanesi er hafin.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna, með ofangreindri breytingum á útfærslu bráðabirgðabyggingar, sem breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu að svörum við athugasemdum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots á Álftanesi að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum, umsögnum og greinargerð umhverfissviðs þar sem lögð eru til svör við athugasemdum. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu dælustöðvar fráveitu á óbyggðu svæði vestan Hólmatúns.
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 gerir ráð fyrir veitumannvirki, þ.e. dælistöð fráveitu á þessum stað sem að nánar þurfi að gera ráð fyrir í deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd hefur skilning á því að íbúar í námunda við staðinn hafi áhyggjur af staðsetningu stöðvarinnar, sérstaklega af bráðabirgðarráðstöfunum vegna skólphreinsunar.
Málið hefur verið skoðað vel að hálfu umhverfissviðs og ráðgjafa, m.a. hvort önnur staðsetning gæti verið betri. Sjálfrennsli núverandi lagna hefur þar mikið að segja og það rask sem framkvæmdir myndu óhjákvæmilega fylgja breytingum á lögnum sem væri þá ráðist í vegna útfærslu á bráðabirgðaráðstöfunum.
Niðurstaða skoðunar er sú að ekki er mælt með annarri staðsetningu en þeirri sem deiliskipulagstillagan og aðalskipulag gera ráð fyrir.
Óþægindi vegnar lyktmengunar teljast óveruleg en til að koma til móts við athugasemdir þá leggur skipulagsnefnd til að bætt verði við ákvæði í tillöguna sem gerir ráð fyrir því að lífsíu (biofilter) verði komið fyrir í útblæstri bráðabirgðahreinsistöðvar.
Áhrif umferðar í tengslum við rekstur teljast óveruleg og er ekki ástæða til að bregðast við þeim þætti málsins.
Útsýnisskerðing samkvæmt auglýstri tillögu er nokkur á meðan að bráðabirgðaráðstafanir vegna hreinsunar eru til staðar. Skipulagsnefnd leggur til að hámarkshæð byggingar vegna hreinsistöðvar til bráðarbirgða lækki um 1 metra, úr 3 m í 2 og að hún verði niðurgrafin og umlykt grasmönum að auki. Grasmanir koma að auki til móts við athugasemdir sem lúta að hugsanlegu ónæði vegna hljóðs frá hreinsistöðinni.
Mikilvægi þess að meðhöndlun fráveitu sé samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru og hafa það að tilgangi að draga úr áhrifum á umhverfið er ótvírætt.
Undirbúningur vegna útfærslu á endurbættu fráveitukerfi á Álftanesi er hafin og beinir skipulagsnefnd því til umhverfissviðs að þeirri vinnu verði flýtt eftir megni.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna, með ofangreindri breytingum á útfærslu bráðabirgðabyggingar, sem breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsnefnd samþykkir framlagða tillögu að svörum við athugasemdum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Deildar og Landakots sem gerir ráð fyrir dælistöð fráveitu að lokinni auglýsingu ásamt athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Tillögu, athugasemdum og umsögnum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

7. (940). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit vegna fráveitumannvirkja í samræmi við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Í tillögunni er gert ráð fyrir 785 m2 lóð. Innan byggingarreits er heimilt að reisa dælistöð fyrir skólp með þeim tækjabúnaði sem stöðin krefst í samræmi við reglugerð um fráveitu og skólp nr. 789/1999. Til bráðarbirgða verði heimilt að reisa mannvirki, s.s. gám fyrir grófhreinsun á skólpi sem í dag rennur óhreinsað út í sjó við Hrakhólma.
Heildarbyggingarmagn lóðar er allt að 100 m2 að grunnfleti og hámarkshæð fyrir bráðabirgðar mannvirki er allt að 3 metrar (22 feta gámur).
Til frambúðar er gert ráð fyrir niðurgrafinni dælustöð, allt að einn meter að hæð þaðan sem skólpi verður dælt til varanlegrar hreinsistöðvar sem verður á öðrum stað.
Við framkvæmdir skal þess gætt að jarðrask verði sem allra minnst og frágangur á yfirboði falli sem best að landslagi.

Kynna skal tillöguna sérstaklega fyrir eigendum aðliggjandi húsa við Hólmatún." (Mál nr. 2403405)

Bæjarráð Garðabæjar

06

16. (2117). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja, tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 24. apríl 2024, að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit vegna fráveitumannvirkja í samræmi við ákvæði aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.

Í tillögunni er gert ráð fyrir 785 m2 lóð. Innan byggingarreits er heimilt að reisa dælistöð fyrir skólp með þeim tækjabúnaði sem stöðin krefst í samræmi við reglugerð um fráveitu og skólp nr. 789/1999. Til bráðarbirgða verði heimilt að reisa mannvirki, s.s. gám fyrir grófhreinsun á skólpi sem í dag rennur óhreinsað út í sjó við Hrakhólma.
Heildarbyggingarmagn lóðar er allt að 100 m2 að grunnfleti og hámarkshæð fyrir bráðabirgðar mannvirki er allt að 3 metrar (22 feta gámur).
Til frambúðar er gert ráð fyrir niðurgrafinni dælustöð, allt að einn meter að hæð þaðan sem skólpi verður dælt til varanlegrar hreinsistöðvar sem verður á öðrum stað.
Við framkvæmdir skal þess gætt að jarðrask verði sem allra minnst og frágangur á yfirboði falli sem best að landslagi.

Kynna skal tillöguna sérstaklega fyrir eigendum aðliggjandi húsa við Hólmatún.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Deildar og Landakots á Álftanesi sem gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit vegna fráveitumannvirkja í samræmi við ákvæði Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030.
Gert er ráð fyrir 785 m2 lóð. Innan byggingarreits er heimilt að reisa dælistöð fyrir skólp með þeim tækjabúnaði sem stöðin krefst í samræmi við reglugerð um fráveitu og skólp nr. 789/1999. Til bráðarbirgðar verði heimilt að reisa mannvirki, s.s. gám fyrir grófhreinsun á skólpi sem í dag rennur óhreinsað út í sjó við Hrakhólma.
Heildarbyggingarmagn lóðar er allt að 100 m2 að grunnfleti og hámarkshæð fyrir bráðabirgðar mannvirki er allt að 3 m.(22 feta gámur).
Til frambúðar er gert ráð fyrir niðurgrafinni dælustöð, allt að 1 m að hæð þaðan sem skólpi verður dælt til varanlegrar hreinsistöðvar sem verður á öðrum stað.
Við framkvæmdir skal þess gætt að jarðrask verði sem allra minnst og frágangur á yfirboði falli sem best að landslagi.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar skv. 1.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Kynna skal tillöguna sérstaklega fyrir eigendum aðliggjandi húsa við Hólmatún.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

4. fundur

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um breytingu deiliskipulags Hólmatúns sem gerir ráð fyrir staðsetningu dælustöðvar fráveitu til samræmis við ákvæði aðalskipulags. Kristleifur Guðjónsson hjá Eflu gerði grein fyrir stöðu málsins en ljóst er að setja þarf upp varanlegan fráveitubrunn og hreinsistöð til bráðabirgða þangað til endanleg hönnun fráveitukerfis á Álftanesi liggur fyrir.
Vísað til útvinnslu hjá umhverfissviði og Eflu ehf.