Beint í efni

13. (946). fundur

19.09.2024
Bæjarstjórn Garðabæjar

13. (946). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

19.09.2024

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Sigurður Sveinn Þórðarson - varabæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Forseti bæjarstjórnar bauð Sigurð Þórðarson velkominn til fundarins, en hann situr sinn fyrsta fund
sem bæjarfulltrúi.

Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 5. september 2024 er lögð fram.

Bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og minntist Benedikts Sveinssonar, fyrrverandi bæjarfulltrúa sem lést í
vikunni. Bæjarstjórn Garðabæjar færir fjölskyldu Benedikts samúðarkveðjur vegna fráfalls hans.

Dagskrá

Málsnúmer 2409007F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 10/9 ´24.

Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2409019F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 17/9 ´24.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 8.tl. - Umhverfishópa 2024 - greinargerð um sumarvinnu ungs fólks.

Fundargerðin sem er 15.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

Málsnúmer 2405041F

03

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 28/5 ´24.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi starfsemi Hönnunarsafnsins, 2. tl. aðsóknartölur 2024 og 7.tl. húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 2. tl. aðsóknartölur 2024 og 3.tl. safnfræðslu.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi 1.tl. Hönnunarmars 2024.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi starfsemi Hönnunarsafnsins og 7.tl. húsnæðismál Hönnunarsafns Íslands.


Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409010F

04

Fundargerð leikskólanefndar frá 11/9 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409014F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/9 ´24.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2409011F

06

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/9 ´24.

Björg Fenger tók til máls og ræddi 1.tl. Hafnarfjörð, deiliskipulagsbreytingu. Borteigar við Kapelluhraun.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401136

07

Fundargerðir stjórnar SSH frá 2/9 og 6/9 ´24.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2401134

08

Fundargerð stjórnar Strætó bs. frá 15/8 ´24.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls og ræddi 1.tl. árshlutauppgjör janúar til júní 2024, 2.tl. fjárhagsáætlun 2025 - meginforsendur og fyrstu drög, 3.tl. launamál og 4.tl. sölur til loka júlí.

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og ræddi fundargerðina.

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi 2.tl. fjárhagsáætlun 2025 - meginforsendur og fyrstu drög.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401139

09

Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 2/9 ´24.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls og ræddi fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2401138

10

Fundargerðir eigendafunda Strætó bs. frá 1/7 og 2/9 ´24.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2307150

11

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 - lántaka

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga samtals að fjárhæð kr. 350.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2409_48. Um er að ræða jafngreiðslulán með lokagjalddaga 5. nóvember 2055, með 2,5% árlegum föstum vöxtum allan lánstímann. Virkir vextir eru í samræmi við lið 1.D og eru 3,80% með uppgreiðsluheimild.

Þá gerði bæjarstjóri jafnframt grein fyrir tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga, samtals að fjárhæð kr. 150.000.000 samkvæmt lánssamningi nr. 2409_47. Um er að ræða jafngreiðslulán með lokagjalddaga 5. nóvember 2055, með 2,5% árlegum föstum vöxtum allan lánstímann. Virkir vextir eru í samræmi við lið 1.D og eru 3,80% með uppgreiðsluheimild.

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útreiðslufjárhæð allt að kr. 350.000.000,-, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.

Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til vegna byggingar 3. áfanga Urriðaholtsskóla sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og

ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð

sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að útgreiðslufjárhæð allt að kr. 150.000.000,-, með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér.

Sveitarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstólsfjárhæðinni, uppgreiðslugjaldi, auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.

Er lánið tekið til fjármögnunar á endurbótum á skólahúsnæði sveitarfélagsins sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, kt. 030572-2979, veitt fullt og

ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð

sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."

Bókun lánveitingar og skilmála þeirra lesin upp og færð til bókar. Samþykkt samhljóða.