Beint í efni

Fjallahjólamót í nágrenni höfuðborgarsvæðisins

Málsnúmer 2404442

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

28. fundur

Til kynningar. Hjólreiðafélag Reykjavíkur leitar eftir heimild til að halda fjallahjólamót þann 8. júní, í staðin fyrir okkar árlegu Bláalónsþraut, sem ekki er hægt að setja á dagskrá út af jarðrhræringum við Grindavík.
Leiðin fer í gegnum nokkur sveitarfélög, start er í Heiðmörk og hjólað á veginum í áttina að Kaldárseli, kringum Búrfell og aftur til baka.

Lögð var fram til kynningar umsókn Hjólreiðafélags Reykjavíkur til að halda fjallahjólamót þann 8. júní, í staðin fyrir árlegu Bláalónsþraut, sem ekki er hægt að setja á dagskrá út af jarðrhræringum við Grindavík.
Leiðin fer í gegnum nokkur sveitarfélög, start er í Heiðmörk og hjólað á veginum í áttina að Kaldárseli, kringum Búrfell og aftur til baka.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (2117). fundur

Erindi Hjólreiðafélags Reykjavíkur um heimild til að halda fjallahólamót þann 8. júní 2024, í staðinn fyrir Bláalónsþraut, sem ekki er hægt að setja á dagskrá vegna jarðhræringa í Grindavík. Gert er ráð fyrir hjólaleið í gegnum nokkur sveitarfélög. Rásmark í Heiðmörk og hjólað á veginum í áttina að Kaldárseli, kringum Búrfell og aftur til baka.

Bæjarráð vísar erindinu til umhverfissviðs.