28. fundur
28. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
08.05.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
- Lilja Lind Pálsdóttir - varamaður
- Stefanía Magnúsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 2402380
01
Sumarnámskeið 2024
Auglýsing um sumarnámskeið barna er nú á vef Garðabæjar https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/
Garðabær er í samstarfi við Stjörnuna, Vífil og Svani um að bjóða heilsdags námdskeið með gæslu í hádeginu.
Á yfirliti er hægt að sjá hvað er í boði hjá mismunandi aðilum yfir þær vikur sem skólar eru ekki starfandi.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi kynnti sumarnámskeið í Garðabæ árið 2024. Auglýsing um sumarnámskeið barna er nú á vef Garðabæjar.
https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/
Garðabær er í samstarfi við Ungmennafélagið Stjörnuna og skátafélögin Vífil og Svani um að bjóða heilsdags námskeið með gæslu í hádeginu. 20 aðilar, félög og söfn munu halda sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni í bænum sumarið 2024.
Á yfirliti sem birt hefur verið á vef Garðabæjar er hægt að sjá hvað er í boði hjá mismunandi aðilum yfir þær vikur sem skólar eru ekki starfandi.
Málsnúmer 2405084
02
Vinnuskólinn 2024
Kynnning á stöðu umsókna og ráðningu flokksstjóra í Vinnuskóla Garðabæjar 2024.
Kynning á stöðu skráninga í Vinnuskóla Garðabæjar sumarið 2024.
Staðan í byrjun maí er:
8. bekkur, árg. 2010 = 190 umsóknir
9. bekkur, árg. 2009 = 197 umsóknir
10. bekkur, árg. 2008 = 132 umsóknir.
Forstöðumaður Vinnuskólans reiknar með að um 650-700 skráningar verði þegar upp er staðið en reynslan er sú að það fjölgi um 15-20% á síðustu vikunum fyrir skólalok. Reiknað er með 100 skráningum í viðbót fram að sumri.
Málsnúmer 2008582
03
Ungmennahús undirbúningsvinna
Áframhaldandi umræður um ungmennahús, hugmyndavinnu og þarfagreiningu í tengslum við það. Fyrir fundinum lá þarfagreining á húsnæði við Garðatorg 1 sem unnin var árið 2021 í samstarfi menningarfulltrúa, íþrótta- tómstunda- og forvarnafulltrúa, forstöðumanni Hönnunarsafns Íslands, fyrrum forvarnafulltrúa, aðila úr ungmennaráði og forstöðumönnum félagsmiðstöðva. Í þarfagreiningunni er fjallað m.a. um starfsemi ungmennahúss og möguleika þess í húsnæðinu.
Formaður ÍTG upplýsti ráðið um fund hans með formanni ungmennaráðs þar sem samstarf ráðanna að málinu og næstu skref voru rædd. Ungmennaráð fundaði um málið á fundi sínum 7. maí þar sem unnið var að hugmyndavinnu um starfsemi og staðsetningu ungmennahúss. ÍTG fór yfir hugmyndir ungmennaráðs og gagnlegar umræður fóru fram. Formanni ÍTG og íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúa var falið að halda áfram að vinna að framgangi verkefnisins í samstarfi við ungmennaráð.
Málsnúmer 2404116
04
Íþróttaþing Garðabæjar
Áframhald umræðu um fyrirkomulag íþrótta- og tómstundaþings Garðabæjar haustið 2024
Áframhaldandi umræður um fyrirkomulag íþrótta- og tómstundaþings Garðabæjar haustið 2024. Hugmyndum um rýnihópa mismunandi aldurshópa var stillt upp í þeim tilgangi að hafa niðurstöður þeirra sem umræðugrundvöll á þinginu. Ákveðið var að leita tilboða hjá utanaðkomandi aðilum til að halda utan um umræðurnar og taka saman niðurstöðum.
Málsnúmer 2404480
05
Umsókn um styrk vegna keppnisferðar á Special Olympics Idrottfestival.
Íþróttaféalgið Ösp sækir um ferðastyrk fyrir eftirtalda einstaklinga vegna keppnisferðar á Special Olympics Idrottfestival, áður Nordic games í Frederikshavn í Danmörku dagana 23.-27.maí 2024.
Öspin er í forsvari fyrir hópnum sem ætlar út sem Team Iceland. Með á leikana fara í heildina 157 manns, af þeim eru 77 keppendur, 61 fylgdarmaður, 17 þjálfarar og 2 fararstjórar/aðstoðarþjálfarar.
Þetta er ferð á Special Olympics og eru keppendur fulltrúar Íslands á þessu móti en ferðin er m.a. í samstarfi við Special Olympics deild ÍF.
Þeir keppendur sem búa í Garðabæ og óskað er eftir styrk fyrir eru:
Embla Dögg Hannesdóttir - fótbolti
Ásmundur Þór Ásmundsson - frjálsar
Skúli Steinar Pétursson - frjálsar
Aníta Ósk Hrafnsdóttir - frjálsar
Styrkurinn óskast lagður inn á reikning sem var sérstaklega stofnaður fyrir Special Olympics Idrottfestival.
ÍTG samþykkir að veita Íþróttafélaginu Ösp styrk að upphæð 240.000,- vegna þátttöku fjögurra einstaklinga úr Garðabæ vegna keppnisferðar á Special Olympics Idrottfestival, áður Nordic games í Frederikshavn í Danmörku dagana 23.-27.maí 2024.
Þeir keppendur sem búa í Garðabæ og hljóta styrk eru:
Embla Dögg Hannesdóttir - fótbolti
Ásmundur Þór Ásmundsson - frjálsar
Skúli Steinar Pétursson - frjálsar
Aníta Ósk Hrafnsdóttir - frjálsar
Málsnúmer 2404361
06
Forsetabikarinn 2024
Forsetabikarinn - hverfishátíð á Álftanesi 9. maí.
Skokkhópur UMFÁ heldur utan um Forsetahlaupið sem er viðburður á vegum UMFÍ. Hlaupin er ein 5km leið frá íþróttamiðstöðinni við Breiðumýri á Álftanesi út að Hliðsnesi og síðan að Bessastöðum og endað á byrjunarareitnum við íþróttamiðstöðina.
Samhliða þessu og fram á daginn eru ýmsir viðburðir á dagskrá.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi og formaður ÍTG kynntu dagskrá Forsetabikarsins á vegum UMFÁ sem haldin er á Álftanesi á uppstigningardag, 9. maí nk. Á meðal dagskrárþátta eru fótboltaleikir, tónleikar, hoppukastalar, leiktæki, hestateymingar, bílasýningar, dýragarður, matarvagnar og forsetahlaupið, en farið var yfir hlaupaleiðina á fundinum.
ÍTG fagnar metnaðarfullri og skemmtilegri dagskrá Forsetabikarsins árið 2024.
Málsnúmer 2404442
07
Fjallahjólamót í nágrenni höfuðborgarsvæðisins
Til kynningar. Hjólreiðafélag Reykjavíkur leitar eftir heimild til að halda fjallahjólamót þann 8. júní, í staðin fyrir okkar árlegu Bláalónsþraut, sem ekki er hægt að setja á dagskrá út af jarðrhræringum við Grindavík.
Leiðin fer í gegnum nokkur sveitarfélög, start er í Heiðmörk og hjólað á veginum í áttina að Kaldárseli, kringum Búrfell og aftur til baka.
Lögð var fram til kynningar umsókn Hjólreiðafélags Reykjavíkur til að halda fjallahjólamót þann 8. júní, í staðin fyrir árlegu Bláalónsþraut, sem ekki er hægt að setja á dagskrá út af jarðrhræringum við Grindavík.
Leiðin fer í gegnum nokkur sveitarfélög, start er í Heiðmörk og hjólað á veginum í áttina að Kaldárseli, kringum Búrfell og aftur til baka.
Málsnúmer 2404237
08
Kolbrún Eva Hólmarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur vegna EM unglinga í fimleikum 28. apríl til 4. maí 2024 á Rimini á Ítalíu.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur kr. 20.000,- vegna EM unglinga í fimleikum 28. apríl til 4. maí 2024 á Rimini á Ítalíu.
Málsnúmer 2404238
09
Kolbrún Eva Hólmarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur vegna NM unglinga í fimleikum 4.-8. apríl 2024 í Ósló í Noregi.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Kolbrúnar Evu Hólmarsdóttur kr 20.000,- vegna NM unglinga í fimleikum 4.-8. apríl 2024 í Ósló í Noregi.
Málsnúmer 2404280
10
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur vegna EM unglinga í fimleikum 28. apríl til 4. maí 2024 á Rimini á Ítalíu.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur kr. 20.000,- vegna EM unglinga í fimleikum 28. apríl til 4. maí 2024 á Rimini á Ítalíu.
Málsnúmer 2404282
11
Sigurrós Ásta Þórisdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur vegna NM unglinga í fimleikum 4.-8. apríl 2024 í Ósló í Noregi.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Sigurrósar Ástu Þórisdóttur kr. 20.000,- vegna NM unglinga í fimleikum 4.-8. apríl 2024 í Ósló í Noregi.
Málsnúmer 2404363
12
Margrét Lea Kristinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrk til Margrétar Leu Kristinsdóttur vegna NM unglinga í fimleikum 4.-8. apríl 2024 í Ósló í Noregi.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Margrétar Leu Kristinsdóttur kr. 20.000,- vegna NM unglinga í fimleikum 4.-8. apríl 2024 í Ósló í Noregi.
Málsnúmer 2405014
13
Rannveig Edda Aspelund - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur til Rannveigar Eddu Aspelund kr. 20.000 vegna þátttöku í Dance World Cup (í dansi, ballet, show dance) í Prag 30. júlí 2024.
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Rannveigar Eddu Aspelund kr. 20.000,- vegna þátttöku í Dance World Cup (í dansi, ballet, show dance) í Prag 30. júlí 2024.