Sumarnámskeið 2024
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
32. fundur
Samantekt um sumarnámskeið/sumarfrístund Garðabæjar 2024
Farið var yfir skýrslu íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúa um sumarnámskeið í Garðabæ 2024. Samið var við stærstu félögin í Garðabæ um að halda úti sumarnámskeiðum sem þjónuðu börnum á aldrinum 6-9 ára frá klukkan 9:00 til 15:00 sem flesta daga. Til að auðvelda félögunum þetta greiddi Garðabær sérstaklega fyrir yfirstjórn og skipulagningu námskeiðanna. Að auki fengu félögin úthlutað starfsmönnum úr sumarvinnuátaki ungmenna.
Með þessum stuðningi vill Garðabær tryggja framboð til þessara barna um afþreyingu og faglegt starf allt sumarið, um leið og kostnaði er haldið í lágmarki.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
28. fundur
Auglýsing um sumarnámskeið barna er nú á vef Garðabæjar https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/
Garðabær er í samstarfi við Stjörnuna, Vífil og Svani um að bjóða heilsdags námdskeið með gæslu í hádeginu.
Á yfirliti er hægt að sjá hvað er í boði hjá mismunandi aðilum yfir þær vikur sem skólar eru ekki starfandi.
Íþrótta-, tómstunda- og forvarnafulltrúi kynnti sumarnámskeið í Garðabæ árið 2024. Auglýsing um sumarnámskeið barna er nú á vef Garðabæjar.
https://www.gardabaer.is/ibuar/ithrotta-og-tomstundastarf/sumarnamskeid/
Garðabær er í samstarfi við Ungmennafélagið Stjörnuna og skátafélögin Vífil og Svani um að bjóða heilsdags námskeið með gæslu í hádeginu. 20 aðilar, félög og söfn munu halda sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni í bænum sumarið 2024.
Á yfirliti sem birt hefur verið á vef Garðabæjar er hægt að sjá hvað er í boði hjá mismunandi aðilum yfir þær vikur sem skólar eru ekki starfandi.