32. fundur
32. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
09.10.2024
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Gunnar Richardson - tómstundafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Gestur fundarins er Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri Garðabæjar undir fyrsta lið á dagskrá.
Dagskrá
Málsnúmer 2404116
01
Íþróttaþing Garðabæjar
Áframhald undirbúningsvinnu fyrir íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar.
Samþykkt var að stefna að dagsetningu íþrótta- og tómstundaþings 5. febrúar 2025.
Spurningalistar verða sendir á rýnihópa 1. nóvember.
Fyrir þingið verði framboð á íþrótta- og tómstundastarfi í Garðabæ tekið saman og flokkað niður á aldur og kyn sem verður notað til grundvallar umræðna á þinginu.
Að sama skapi verður fjöldi iðkenda og iðkana hjá frjálsu félögunum í bænum greindur og útlistaður. Niðurstöður úr öðrum rannsóknum verða teknar saman, s.s. úr Rannsóknum & Greiningu, Æskulýðsrannsókninni o.fl.
Málsnúmer 2409265
02
Forvarnavika Garðabæjar 2024
Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar 1. til 8. nóvember til umræðu.
Dagskrá forvarnaviku Garðabæjar 1. til 8. nóvember var til áfram haldandi umræðu.
Áherslan verður á „Góð samskipti“ og S-in fimm í Samskiptasáttmála Garðabæjar sem eru:
Samkennd, seigla, sjálfsstjórn, sjálfstæði, skapandi hugsun.
Málsnúmer 2402380
03
Sumarnámskeið 2024
Samantekt um sumarnámskeið/sumarfrístund Garðabæjar 2024
Farið var yfir skýrslu íþrótta-, tómstunda og forvarnafulltrúa um sumarnámskeið í Garðabæ 2024. Samið var við stærstu félögin í Garðabæ um að halda úti sumarnámskeiðum sem þjónuðu börnum á aldrinum 6-9 ára frá klukkan 9:00 til 15:00 sem flesta daga. Til að auðvelda félögunum þetta greiddi Garðabær sérstaklega fyrir yfirstjórn og skipulagningu námskeiðanna. Að auki fengu félögin úthlutað starfsmönnum úr sumarvinnuátaki ungmenna.
Með þessum stuðningi vill Garðabær tryggja framboð til þessara barna um afþreyingu og faglegt starf allt sumarið, um leið og kostnaði er haldið í lágmarki.
Málsnúmer 2404316
04
Samningar við félög til undirritunar 2024
Yfirlit yfir samninga við félög í Garðabæ til undirritunar árið 2024. Gildirstími er út árið 2025.
Skátafélagið Vífill - sérákv. um 17. júní og sumardaginn fyrsta
Skátafélagið Svanir
Golfklúbburinn Álftanesi
Golfklúbburinn Oddur
Golfklúbbur GKG
Hestamannafélagið Sprettur
Knattspyrnufélag Garðabæjar KFG
Tennisfélag Garðabæjar TFG
Taflfélag Garðabæjar TG
Hestamannafélagið Sóti
Garðasókn
Farið var yfir samstarfssamninga Garðabæjar sem voru til endurnýjunar á árinu 2024 við einstök félög í bænum. Félögin sem um ræðir eru:
Skátafélagið Vífill - sérákv. um 17. júní og sumardaginn fyrsta, Skátafélagið Svanir, Golfklúbburinn Álftanesi, Golfklúbburinn Oddur, Golfklúbbur GKG, Hestamannafélagið Sprettur, Knattspyrnufélag Garðabæjar KFG, Tennisfélag Garðabæjar TFG, Taflfélag Garðabæjar TG, Hestamannafélagið Sóti, Garðasókn.