Íþróttaþing Samráðsfundur Íþróttafélaga Garðabæjar
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
49. fundur
Íþróttaþing, vinnustofa íþróttafélag í Garðabæ var haldin í Miðgarði 23. mars sl. Góðar umræður voru á borðum þar sem fundarmenn glímdu við að svara fjórum mikilvægum spurningum um starfið í bænum.
Fram kom hjá fundarmönnum að:
Sterkt og metnaðarfullt íþróttasamfélag er í Garðabæ.
Áskoranir í innviðum og íþróttaaðstöðu vegna fólksfjölgunar.
Þjónusta nær ekki til allra hópa, s.s. fatlaðra barna og ungmenna.
Þörf er á skýrri framtíðarsýn og samhæfingu í starfi félaga.
ÍTG þakkar þátttakendum á íþróttaþingi og vinnustofu íþrótta- og tómstundafélaga í Garðabæ, sem fram fór í Miðgarði 23. mars sl., fyrir gagnlegar umræður. Á þinginu kom fram að í Garðabæ væri öflugt og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, þar sem 22 íþrótta- og tómstundafélög starfa í bænum. Rætt var um mikilvægi þess að innviðir og aðstaða þróist áfram í góðu samræmi við fólksfjölgun og þarfir samfélagsins. Jafnframt var áréttað að þjónustan þurfi að ná til allra hópa, svo sem fatlaðra barna og ungmenna, og að áfram verði unnið að skýrri framtíðarsýn, bættri samhæfingu og auknu samstarfi milli félaganna.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
02
48. fundur
Stefnt er að vinnufundi ÍTG með íþróttafélögum í Garðabæ 24. mars nk. kl. 17-19:00 í Miðgarði, 2. hæð, til að hafa samráð um þau málefni sem lúta að starfi félaganna og þjónustu við íbúa Garðabæjar.
Félögin og deildir þeirra í Garðabæ fá sent skráningarform fyrir fundinn á næstu dögum með nánari upplýsingum.
Stefnt er að vinnufundi Íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar með íþróttafélögum bæjarins þann 24. mars nk. kl. 17?19 í Miðgarði, 2. hæð. Markmið fundarins er að eiga opið samtal um þau málefni sem snúa að starfsemi félaganna og þjónustu við íbúa Garðabæjar.
Íþrótta- og tómstundaráð leggur áherslu á mikilvægi virks samtals og samráðs við félögin og deildir þeirra um áframhaldandi þróun íþrótta- og tómstundastarfs í bænum. Íþrótta- og tómstundafulltrúa er falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
03
42. fundur
Umræða um gátlista og tímasetningar.
Markmið íþrótta- og tómstundaþings er að vekja athygli, rýna starfið í bæjarfélaginu, byggja á tölfræði og hlusta á hagaðila. Áhersla er á að safna viðhorfum og skapa yfirsýn. Sjá hvað er vel gert og hvað má betur gera.
Miðað er við að ná til breiðs hóps almennings, félaga og iðkenda, skóla og félagsmiðstöðva.
Spurningakannanir verða sendar út á markhópa sem unnið verður úr og niðurstöður settar í umræðuhópa.
Stefnt er á að halda íþrótta- og tómstundaþingið seinnihluta október.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
04
41. fundur
Stefnt er að íþrótta- og tómstundaþingi Garðabæjar í október með þátttöku fulltrúa félagasamtaka og félagsmiðstöðva í Garðabæ.
Íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar verður haldið í október næstkomandi. Góðar umræður fóru fram um fyrirhugaða greiningarvinnu og fyrirkomulag umræðna á þinginu. Fulltrúar íþrótta- og tómstundafélaga verða boðaðir til þingsins ásamt öðrum hagaðilum í bænum sem tengjast íþrótta- og frístundastarfi.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
05
32. fundur
Áframhald undirbúningsvinnu fyrir íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar.
Samþykkt var að stefna að dagsetningu íþrótta- og tómstundaþings 5. febrúar 2025.
Spurningalistar verða sendir á rýnihópa 1. nóvember.
Fyrir þingið verði framboð á íþrótta- og tómstundastarfi í Garðabæ tekið saman og flokkað niður á aldur og kyn sem verður notað til grundvallar umræðna á þinginu.
Að sama skapi verður fjöldi iðkenda og iðkana hjá frjálsu félögunum í bænum greindur og útlistaður. Niðurstöður úr öðrum rannsóknum verða teknar saman, s.s. úr Rannsóknum & Greiningu, Æskulýðsrannsókninni o.fl.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
06
31. fundur
Drög að spurningalista til rýnihópa.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir samskiptastjóri Garðabæjar fór yfir minnisblað um undirbúning og framkvæmd íþrótta- og tómstundaþings. Unnið verður áfram samkvæmt þeirri áætlun að undirbúningi.
Fjallað var sérstaklega um drög að spurningalistum til rýnihópa og hvernig best væri að nálgast mismunandi hópa.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
07
30. fundur
Til umræðu íþrótta- og tómstundaþing Garðabæjar 2024
Fyrirhuguð dagsetning í október eða nóvember 2024.
Vinna með rýnihópum fer í gang á næstunni. Rætt var um mögulega dagskrá og undirbúningsvinnu með tilteknum markhópum.
Ásta Sigrún samskiptastjóri Garðabæjar setur saman minnisblað um næstu skref.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
08
29. fundur
Framhald umræðu um fyrirkomulag íþróttaþings Garðabæjar.
Umræður um fyrirkomulag íþróttaþings sem haldið verður haustið 2024. Í sumar verður unnið með rýnihópa til að undirbúa umræður á þinginu. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa og formanni ÍTG falið að halda undirbúningi áfram.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
09
28. fundur
Áframhald umræðu um fyrirkomulag íþrótta- og tómstundaþings Garðabæjar haustið 2024
Áframhaldandi umræður um fyrirkomulag íþrótta- og tómstundaþings Garðabæjar haustið 2024. Hugmyndum um rýnihópa mismunandi aldurshópa var stillt upp í þeim tilgangi að hafa niðurstöður þeirra sem umræðugrundvöll á þinginu. Ákveðið var að leita tilboða hjá utanaðkomandi aðilum til að halda utan um umræðurnar og taka saman niðurstöðum.
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
10
27. fundur
Til umræðu er hugmynd um að ÍTG boði til íþróttaþings í Garðabæ í byrjun maí 2024 til að ræða helstu mál á þeim vettvangi.
Rætt var um að ÍTG boði til íþrótta- og tómstundaþings í Garðabæ til að ræða helstu mál á þeim vettvangi. Umræður fóru fram um umræðuefni og fyrirkomulag. Stefnt verður að því að halda þingið næsta haust.