29. fundur
29. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
05.06.2024
Kl. 08:00 - 09:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - formaður
- Harpa Rós Gísladóttir - aðalmaður
- Laufey Jóhannsdóttir - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Arnar Hólm Einarsson - aðalmaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþrótta-,tómstunda- og forvarnarfulltrúi
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
01
Íþróttaþing Garðabæjar
Framhald umræðu um fyrirkomulag íþróttaþings Garðabæjar.
Umræður um fyrirkomulag íþróttaþings sem haldið verður haustið 2024. Í sumar verður unnið með rýnihópa til að undirbúa umræður á þinginu. Íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa og formanni ÍTG falið að halda undirbúningi áfram.
02
Þarfagreining varðandi aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf ungs fólks í Garðabæ
Áframhaldandi umræða
Formaður ÍTG upplýsti ráðið um samstarf hans og ungmennaráðs. Formaður fór á fund ungmennaráðs 28. maí sl. og ræddi verkefnið við nefndarmenn. Í kjölfarið svaraði ungmennaráð spurningum sem ÍTG hafði undirbúið fyrir fundinn. Farið var yfir svör ungmennaráðs á fundinum og gagnlegar umræður fóru fram. Formanni ÍTG og íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa falið að halda vinnunni áfram og vinna að áfangaskýrslu í samstarfi við ungmennaráð.
03
Umsókn um rekstrarstyrk vegna reiðahallar.
Umsókn um Hestamannafélagsins Sóta um rekstrarstyrk vegna reiðhallar.
Umsókn Hestamannafélagsins Sóta um rekstur reiðhallar tekin til umfjöllunar. Formanni ÍTG og íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúa falið að fylgja málinu eftir með nýjum samstarfssamningi við félagið.
04
Uppbyggingu siglingaaðstöðu ásamt kaupum á nauðsynlegum búnaði
Siglingaklúbburinn Vogur sækir um styrk við uppbyggingu siglingaaðstöðu ásamt kaupum á nauðsynlegum búnaði.
Umsókn Siglingaklúbbsins Vogs um styrk tekin fyrir. 5 milljónir króna verða settar í bætta aðstöðu fyrir Siglingaklúbbinn í gegnum verkefnið Betri Garðabæ. Garðabær mun jafnframt styðja við sumarstarf Siglingaklúbbsins með því að veita honum aðstöðu í Sjálandsskóla og greiða fjárstyrk fyrir umsjón með tveggja vikna sumarnámskeiði í ágúst.
05
Viktor Bjarki EInarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Viktors Bjarka Einarssonar vegna ferðar með U16 liði HSÍ til Færeyja.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000,- til Viktors Bjarka Einarssonar vegna ferðar með U16 liði HSÍ til Færeyja 31.maí 2024.
06
Matthías Dagur Þorsteinsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
ÍTG samþykkir ferðastyrk til Matthíasar Dags Þorsteinssonar vegna ferðar til Færeyja með U16 liði HSÍ 31. maí 2024.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr.20.000,- til Matthíasar Dags Þorsteinssonar vegna ferðar til Færeyja með U16 liði HSÍ 31. maí 2024.
07
Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferðastyrkur kr. 20.000,- til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur vegna ferðar U20 liðs HSÍ á HM í N-Makedoníu 12.júní 2024.
ÍTG samþykkir ferðastyrk kr. 20.000,- til Sonju Lindar Sigsteinsdóttur vegna ferðar U20 liðs HSÍ á HM í N-Makedoníu 12. júní 2024.
1. Harpa Rós óskaði eftir að fá yfirlit yfir starfsemi Garðalundar og annarra félagsmiðstöðva í vetur. Hún ítrekaði mikilvægi félagsmiðstöðvanna við að koma unglingunum í félagslega virkni.
2. Næsti fundur ÍTG verður 21. ágúst kl. 8:00