Uppbyggingu siglingaaðstöðu ásamt kaupum á nauðsynlegum búnaði
Málsnúmer 2311138
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
29. fundur
Siglingaklúbburinn Vogur sækir um styrk við uppbyggingu siglingaaðstöðu ásamt kaupum á nauðsynlegum búnaði.
Umsókn Siglingaklúbbsins Vogs um styrk tekin fyrir. 5 milljónir króna verða settar í bætta aðstöðu fyrir Siglingaklúbbinn í gegnum verkefnið Betri Garðabæ. Garðabær mun jafnframt styðja við sumarstarf Siglingaklúbbsins með því að veita honum aðstöðu í Sjálandsskóla og greiða fjárstyrk fyrir umsjón með tveggja vikna sumarnámskeiði í ágúst.
Bæjarráð Garðabæjar
02
43.(2096). fundur
Í bréfinu er farið fram á stuðning Garðabæjar við uppbyggingu á siglingarðastöðu ásamt kaupum á búnaði til að efla starfsemi klúbbsins.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.